KA/Þór hefur leik í bikarkeppninni í kvöld
Handboltakonurnar í KA/Þór hafa nægu að sinna í vikunni, tveir leikir á dagskránni, sá fyrri í kvöld og það er bikarleikur.
Bikarkeppni HSÍ í handknattleik kvenna er að fara í gang og fara sex leikir fram núna í vikunni. KA/Þór sækir Fjölni heim í Grafarvoginn í kvöld. Fjölnir leikur í næstefstu deild Íslandsmótsins, Grill 66 deildinni, og er þar í 5. sæti, en KA/Þór er í 7. sæti efstu deildar. Það má því búast við sigri KA/Þórs, en í bikarkeppni getur auðvitað ýmislegt gerst þótt lið spili ekki í sömu deild.
- Handbolti
Bikarkeppni HSÍ
Fjölnishöllin í Grafarvogi kl. 19
Fjölnir - KA/Þór
Aðrar viðureignir í þessari fyrstu umferð bikarkeppninnar eru Stjarnan gegn ÍBV, Víkingur gegn Selfossi, FH gegn HK og Afturelding gegn ÍR í kvöld og svo Grótta gegn Fram á morgun. Valur og Haukar sitja hjá og koma inn í átta liða úrslitin ásamt sigurliðunum í þessum sex viðureignum.