Þotur snúa frá vegna vanbúins flugvallar

„Nýlega hafa millilandaþotur frá Edelweiss og Transavia þurft að hætta við lendingar á Akureyrarflugvelli vegna þess hve flugvöllurinn er vanbúinn, sem einkum kemur fram við skilyrði með lélegu skyggni og lágri skýjahæð.“
Þannig hefst grein sem Akureyri.net birtir í dag. Höfundur er Víðir Gíslason, flugmaður og einn hollvina Akureyrarflugvallar.
Víðir segir lengi hafa verið ljóst að brýn þörf sé á aðflugsljósum norðan flugbrautarinnar á Akureyri, enda geti þau ráðið úrslitum um hvort hægt sé að lenda. „Þau auka flugöryggi og bæta aðgengi t.d. vegna millilandaflugs, og ættu að fjármagnast með varaflugvallargjaldi. Ljósin hafa verið í skipulagsreglum flugvallarins frá árinu 2011, á aðalskipulagi Akureyrar frá 2018 og á nýju deiliskipulagi Akureyrarflugvallar.“
Kröfur ekki uppfylltar
Hann segir að frá árinu 2018 hafi aðflugsferlar úr norðri verið stórbættir, þeim fylgi hins vegar kröfur um viðeigandi aðflugsljós í samræmi við alþjóðareglur en þær kröfur hafi ekki verið uppfylltar.
Vegagerðin stóð nýlega fyrir verulegum endurbótum á Leiruveginum, með nýjum hjólastíg og öflugri brimvörn, og Víðir greinir frá því að Isavia hafi verið boðin þáttaka í verkinu „vegna löngu fyrirséðra jarðvegsframkvæmda fyrir framangreindan aðflugsbúnað. Samvinnan var afþökkuð af einhverjum ástæðum, þrátt fyrir augljósa þörf, samlegðaráhrif, og verulegan sparnað á skattfé.“
Lengi hefur verið beðið eftir nýjum aðflugsferlum úr suðri, „sem eru svo sérkapítuli,“ segir Víðir og bætir við: „Nú leikur vafi á hvort þeir muni nýtast í vetur, vegna tafa á hönnun og flugprófunum.“
Grein Víðis: Aðflugsljós við Leiruveg