Fara í efni
Akureyrarflugvöllur

SBA-Norðurleið kaupir rekstur Fjallasýnar

Rúnar Óskarsson eigandi Fjallasýnar (t.v.) og Gunnar M. Guðmundsson, framkvæmdastjóri SBA-Norðurleiðar (t.h.) við undirritun kaupsamningsins.

Sérleyfisbílar Akureyrar - Norðurleið ehf. (SBA) hefur gengið frá kaupum á þeim hluta reksturs Fjallasýnar Rúnars Óskarssonar ehf. í Reykjahverfi sem tengist hópferðum og ferðatengdri þjónustu.

Í fréttatilkynningu frá SBA segir að með kaupunum styrki SBA stöðu sína á sviði ferðaþjónustu og fólksflutninga á Norðurlandi og öðrum helstu markaðssvæðum félagsins. Jafnframt er markmiðið að skapa grundvöll fyrir frekari uppbyggingu, aukið þjónustuframboð og áframhaldandi þróun þeirra verkefna sem Fjallasýn hefur byggt upp á undanförnum árum.

Viðskiptin fela meðal annars í sér kaup á 12 bifreiðum auk vörumerkis Fjallasýnar, viðskiptavildar og annarra rekstrartengdra eigna. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjunum verður áfram byggt á vörumerki Fjallasýnar, sem hefur um árabil notið trausts meðal viðskiptavina, samstarfsaðila og ferðaskipuleggjenda.

Forsvarsmenn fyrirtækjanna leggja áherslu á að kaupin muni ekki hafa áhrif á þá þjónustu sem þegar hefur verið samið um. Öllum fyrirhuguðum ferðum og verkefnum verður sinnt samkvæmt áætlun og með sama hætti og áður. Fjallasýn hefur jafnframt tryggt sér áframhaldandi aðgang að þeim bifreiðum sem seldar voru, á meðan verkefni og samningar færast yfir til SBA.

Gunnar M. Guðmundsson, framkvæmdastjóri SBA, segir félagið afar ánægt með kaupin. Hann bendir á að Fjallasýn hafi byggt upp öflugt fyrirtæki með gott orðspor og að starfsemin falli vel að núverandi rekstri SBA. SBA rekur nú flota um 110 hópferðabíla sem sinna fjölbreyttum verkefnum víða um land.

Rúnar Óskarsson hjá Fjallasýn segir viðskiptin marka eðlilegt næsta skref í þróun fyrirtækisins. Eigendur félagsins hyggist draga úr umsvifum eftir langan tíma í rekstri og einbeita sér í framtíðinni að minni verkefnum á borð við skólaakstur, akstur fyrir strætó og ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.

Á næstu vikum og mánuðum munu fyrirtækin vinna saman að yfirfærslu verkefna og innleiðingu breytinganna með það að markmiði að tryggja stöðugan rekstur og órofna þjónustu við viðskiptavini.