Fara í efni
Umræðan

Um 3000 voru á skíðum í gær – rúta óþörf í dag

Svæði Bílaklúbbs Akureyrar var opnað þeim sem hugðust njóta lífsins á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli í gær, boðið var upp á rútuferðir þaðan og aftur niðureftir síðar um daginn. Myndir: Þorgeir Baldursson

Um 3000 manns renndu sér á skíðum í Hlíðarfjalli í gær í góðu veðri, álíka margir og á föstudaginn langa í rjómablíðu. Í ljósi fólksfjölda og bílamergðar daginn áður var í gær boðið upp á rútuferðir frá svæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg þar sem fólk gat lagt bílum og gafst það vel. Slíkt hið sama var í boði í morgun en tilkynnt var áðan að rútuferðum hafi verið frestað.

„Næg bílastæði eru nú í Hlíðarfjalli og fáir hafa nýtt sér rútuferðir og því hefur þeim verið frestað. Þeir 8 gestir sem nýttu sér rúturnar í morgun eru beðnir um að hafa samband við starfsfólk miðasölunnar þegar þeir vilja komast niður í bæ,“ segir í færslu sem birt var á Facebook skíðasvæðisins um klukkan hálf ellefu í morgun. Þá var talið að um 1000 manns væru í fjallinu.

Þorgeir Baldursson tók meðfylgjandi myndir í gær.

Á svæði Bílaklúbbs Akureyrar í gær.

Við ætlum að leggja okkar af mörkum

Óðinn Svan Óðinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifa
25. júní 2026 | kl. 17:00

Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn

Björn Snæbjörnsson skrifar
25. júní 2026 | kl. 10:45

Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
23. júní 2026 | kl. 11:00

Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli

Sindri S. Kristjánsson skrifar
20. júní 2026 | kl. 09:00

Fullveldi

Helgi Jónsson skrifar
18. júní 2026 | kl. 16:30

Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt

Heimir Örn Árnason skrifar
18. júní 2026 | kl. 06:00