Fara í efni
Umræðan

Fækkun sýslumanna – stöldrum við

Ég hafði efasemdir um aðskilnað lögreglu og sýslumanna á sínum tíma og greiddi þeim ekki atkvæði þegar ég sat á Alþingi sem varamaður. Það var vegna þess að ég hafði efasemdir um að þjónustan yrði jafn öflug og þörf var og er á. Markmiðið var m.a. að tryggja að starfsstöðvarnar yrðu stærri og öflugri og réðu við aukinn fjölda stærri verkefna. Ég hef ítrekað vakið máls á þessu fyrirkomulagi í ræðustól Alþingis síðan þá og þykir leitt að segja að því miður hefur þetta ekki gengið eftir að stóru leyti, þrátt fyrir ýmsar tillögur sýslumanna víða um land að verkefnaflutningum og styrkingu embættanna í gegnum árin.

Miðstýring

Nú á aftur að leggja til atlögu með stórri kerfisbreytingu sem felst í því að fækka sýslumönnum niður í einn, búa til miðstýrða einingu sem færir mikið vald frá Alþingi til ráðherra. Markmiðin eru, eins og áður, að byggja upp öflugar og nútímalegar þjónustueiningar og fjölga bæði verkefnum og störfum á landsbyggðunum.

Eftir lestur frumvarpsins get ég engan veginn séð að þessi kerfisbreyting sé nauðsynleg til að ná fram þeim verðugu markmiðum sem stefnt er að. Sporin hræða og það er ekki rakið eða sýnt fram á, með afgerandi hætti, í greinargerð frumvarpsins um hvaða verkefni er að ræða eða hvar þau á að inna af hendi. Þá er ekki sýnt fram á að þeim breytingum sem stefnt er að megi ekki ná fram í núverandi skipulagi sýslumannsembætta, án þessara stórkostlegu kerfisbreytinga. Það hefur verið lítill vilji hjá ráðuneytum og stofnunum fram til þessa að flytja verkefni til sýslumannsembættanna eins og sjá má á svörum við fyrirspurnum mínum varðandi málaflokkinn á síðustu árum.

Nærþjónusta heima í héraði

Ég geri ekki lítið úr mikilvægi þess að fylgja eftir nýjungum m.t.t. stafrænna lausna og sérhæfingu á ýmsum sviðum, enda hafa sýslumenn verið að nútímavæðast með innleiðingu stafrænna lausna, með því að taka að sér ný verkefni sem hafa verið vel leyst. Svo vel að þeir hafa hlotið viðurkenningu fyrir innleiðingu þeirra.

Þá megum við ekki gleyma að sýslumenn og þeirra starfsfólk er mjög oft að sinna viðkvæmri nærþjónustu og að mínu mati er mikilvægt að forræði og stjórnun verkefna verði áfram í nærumhverfinu eins og kostur er. Hér er líka vert að minna á að þrátt fyrir þrönga stöðu hafa embættin sýnt góðan árangur ár eftir ár í þjónustukönnunum og vaxandi ánægja er með þjónustu þeirra.

Af 32 umsögnum um málið í samráðsgátt eru allir, að undanskilinni einni sem tekur ekki afstöðu til nema eins atriðis í málinu, sem telja að málið sé ekki nægjanlega vel unnið, hvort raunveruleg þörf sé á svo miklum breytingum, og það þarfnist frekara samtals og samráðs. Ég tek undir það og ekki síst í ljósi fyrirliggjandi byggðaáætlunar þar sem ég tel málið, eins og það er lagt upp, ekki samræmast þeirri nálgun sem þar er lögð til.

Ég hvet ráðherra til að endurskoða framlagningu málsins og hlusta á alla þá hagaðila sem skiluðu umsögnum um málið. Ég get ekki samþykkt þessa leið sem hér er lagt upp með óbreytta.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er þingmaður VG og formaður fjárlaganefndar

Áhugalausir þingmenn

Björn Valur Gíslason skrifar
25. mars 2024 | kl. 12:30

Akureyri – næsta borg Íslands

Ingibjörg Isaksen skrifar
20. mars 2024 | kl. 14:00

Fimm ástæður til að fagna

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar
19. mars 2024 | kl. 10:00

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45