Fara í efni
Umræðan

Andrea Ýr og Tumi Hrafn fögnuðu sigri

Akureyrarmeistarar í golfi 2026: Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Tumi Hrafn Kúld. Myndir: Ármann Hinrik.

Lokadagurinn á Akureyrarmeistaramótinu í var leikinn í dag og þar tryggðu þau Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Tumi Hrafn Kúld sér Akureyrarmeistaratitlana í meistaraflokki. Rétt eins og fyrstu þrjá keppnisdagana var mikil spenna úti á vellinum og miklar sviptingar í mörgum flokkum og gerði sterkur sunnanvindur kylfingum erfitt fyrir á köflum í dag.

Alls voru 178 kylfingar skráðir til leiks að þessu sinni og skiptust niður í nokkra flokka eftir forgjöf, auk þess sem keppt var í öldungaflokkum 50 ára og eldri og 70 ára og eldri. Flokkarnir leika ýmist fjóra daga eða þrjá.

Landslið Íslands í golfi eru að keppa á EM þessa dagana og því vantaði nokkra sterka keppendur í meistaraflokkum á Akureyrarmótinu.

Í meistaraflokki kvenna voru þrír keppendur og þar var Björk Hannesdóttir með forystuna fyrstu þrjá keppnisdagana en á þriðja degi saxaði Andrea Ýr verulega á það. Fyrir lokadaginn munaði aðeins einu höggi hjá þeim og strax á fyrstu holunni í dag var Andrea búin að jafna metin. Eftir tvær holur var Andrea komin með forystuna en Björk komst svo aftur framúr Andreu á þriðju holunni. En Andrea var komin á bragðið, náði fljótlega forystunni á ný og lét hana aldrei af hendi. Andrea var þarna að vinna sinn sjötta Akureyrarmeistaratitil í meistaraflokki en sá fyrsti kom árið 2016 þegar hún var aðeins 14 ára gömul.

Verðlaunahafar í meistaraflokki kvenna:

  • Andrea Ýr Ásmundsdóttir 81+76+72+73 = 302 högg
  • Björk Hannesdóttir 78+73+77+82 = 310 högg
  • Kara Líf Antonsdóttir 83+82+76+80 = 321 högg

Björk Hannesdóttir (t.v.) og Kara Líf Antonsdóttir (t.h.) gerðu sitt til að Andrea Ýr Ásmundsdóttir þyrfti að hafa fyrir sigrinum. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Í meistaraflokki karla voru 18 keppendur og þar var keppnin gríðarlega jöfn og spennandi. Mjótt hefur verið á munum alla dagana og margir kylfingar skipst á um forystusætið. Tumi Hrafn Kúld náði forystunni á þriðja degi með glæsilegri frammistöðu, hann lék stöðugt golf á lokahringnum og enginn náði að ógna forystu hans. Hafsteinn Thor Guðmundsson skaust upp í annað sætið með besta skori dagsins, 69 höggum, og þeir Patrik Róbertsson og fráfarandi Akureyrarmeistari, Víðir Steinar Tómasson, urðu jafnir í þriðja sætinu og skipta því á milli sín. Tumi Hrafn var þarna að vinna Akureyrarmeistaratitilinn í annað sinn en fyrsti titillinn kom árið 2018.

Feðgar fagna. Akureyrarmeistarar í golfi 2026, kylfingurinn Tumi Hrafn Kúld og kylfusveinninn Arinbjörn Kúld. Mynd: Ármann Hinrik.

Verðlaunahafar í meistaraflokki karla:

  • Tumi Hrafn Kúld 75+77+67+72 = 291 högg
  • Hafsteinn Thor Guðmundsson 76+78+71+69 = 294 högg
  • Patrik Róbertsson 74+73+76+76 = 299 högg
  • Víðir Steinar Tómasson 77+73+71+78 = 299 högg

Hafsteinn Thor Guðmundsson lék vel síðustu tvo keppnisdagana og nældi sér í annað sætið í meistaraflokki karla. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

 

Efst í öðrum flokkum

Í 1. flokki kvenna voru tveir keppendur og þar hafði Ragnheiður Svava Björnsdóttir forystuna allan tímann.

Verðlaunahafar í 1. flokki kvenna:

  • Ragnheiður Svava Björnsdóttir 86+78+80+83 = 327 högg
  • Embla Sigrún Arnsteinsdóttir 87+81+85+90 = 343 högg

Fjórtán keppendur eru í 1. flokki karla og þar háðu Gunnar Aðalgeir Arason og Þorsteinn Már Þorvaldsson mikið einvígi. Þeir voru efstir og jafnir eftir fyrstu tvo dagana og ennþá hnífjafnir fyrir síðasta hringinn. Á lokadeginum voru þeir með forystuna til skiptis og spennan var svakaleg en líklega var það fjögurra högga sveifla á 13. braut sem réði úrslitum. Þorsteinn Már fékk skolla, lék hana á 5 höggum, en Gunnar Aðalgeir var í veseni og endaði á 9 höggum. Þegar upp var staðið var það Þorsteinn Már sem hampaði Akureyrarmeistaratitlinum, aðeins einu höggi á undan Gunnari.

Verðlaunahafar í 1. flokki karla:

  • Þorsteinn Már Þorvaldsson 77+81+80+81 = 319 högg
  • Gunnar Aðalgeir Arason 79+79+80+82 = 320 högg
  • Richard Eirikur Taehtinen 83+81+83+79 = 326 högg

Í 2. flokki kvenna voru þrír keppendur. Þar lék Einrún Ósk Magnúsdóttir best alla dagana og vann sannfærandi sigur.

Verðlaunahafar í 2. flokki kvenna:

  • Einrún Ósk Magnúsdóttir 96+88+93+95 = 372 högg
  • Lísbet Hannesdóttir 104+97+100+101 = 402 högg
  • Ragnhildur Jónsdóttir 102+98+110+106 = 416 högg

2. flokkur karla er mjög fjölmennur, alls 27 keppendur. Þar var mjög hörð og jöfn keppni en Valdimar Þengilsson skaust fram úr Friðfinni Gísla Skúlasyni og Helga Gunnlaugssyni á lokasprettinum og náði að tryggja sér Akureyrarmeistaratitilinn. Helgi stóð best að vígi þegar lítið var eftir af lokahringnum en 10 högg á 16. braut gerðu út um titilvonir hans, því keppinautarnir léku þá braut á 5 höggum.

Verðlaunahafar í 2. flokki karla:

  • Valdimar Þengilsson 82+85+87+86 = 340 högg
  • Friðfinnur Gísli Skúlason 83+82+86+90 = 341 högg
  • Helgi Gunnlaugsson 85+85+83+91 = 344 högg

Í 3. flokki kvenna voru sjö keppendur og Linda Rakel Jónsdóttir lék þar allra kvenna best keppnisdagana þrjá og hampaði Akureyrarmeistaratitlinum. Páley Borgþórsdóttir og Karólína Birna Snorradóttir deila öðru sætinu.

Verðlaunahafar í 3. flokki kvenna:

  • Linda Rakel Jónsdóttir 95+101+99 = 295 högg
  • Páley Borgþórsdóttir 107+105+103 = 315 högg
  • Karólína Birna Snorradóttir 106+101+108 = 315 högg

3. flokkur karla er fjölmennasti flokkurinn í ár en þar voru 28 keppendur og mjög jöfn keppni. Ólafur Helgi Rögnvaldsson var með eitt högg í forskot fyrir lokadaginn og endaði á að vinna með þriggja högga mun. Einar Ingimundarson skaust síðan upp fyrir Arnar Pál Guðmundsson í annað sætið með því að leika best allra á síðasta hringnum.

Verðlaunahafar í 3. flokki karla:

  • Ólafur Helgi Rögnvaldsson 93+87+89+94 = 363 högg
  • Einar Ingimundarson 89+92+95+90 = 366 högg
  • Arnar Páll Guðmundsson 95+86+89+97 = 367 högg

Í 4. flokki kvenna voru leiknir þrír hringir og leikformið punktakeppni en ekki höggleikur. Sex keppendur voru í flokknum og þar vann Kara Rún Árnadóttir Schiöth öruggan sigur. Eydís Elva Guðmundsdóttir hreppti silfrið eftir góðan lokadag og Álfheiður Atladóttir og Margrét Jóna Kristmundsdóttir deila bronsverðlaunum.

Verðlaunahafar í 4. flokki kvenna:

  • Kara Rún Árnadóttir Schiöth 5+11+11 =27 punktar
  • Eydís Elva Guðmundsdóttir 7+5+8 = 20 punktar
  • Álfheiður Atladóttir 8+5+5 = 18 punktar
  • Margrét Jóna Kristmundsdóttir 4+9+5 = 18 punktar

Keppni lauk í gær í 4. flokki karla. Níu keppendur voru í flokknum og Stefáni Bjarna Gunnlaugssyni tókst að skjótast í efsta sætið á lokadeginum og hampar því Akureyrarmeistaratitlinum. Arnþór Gylfi Finnsson og Friðrik Tryggvi Friðriksson komu jafnir þar á eftir og deila öðru sætinu.

Verðlaunahafar í 4. flokki karla:

  • Stefán Bjarni Gunnlaugsson 100+102+102 = 304 högg
  • Arnþór Gylfi Finnsson 110+105+93 = 308 högg
  • Friðrik Tryggvi Friðriksson 103+97+108 = 308 högg

Í 5. flokki karla er leikin punktakeppni en ekki höggleikur og þar eru átta keppendur. Í þessum flokki eru spilaðir þrír hringir og lauk keppni í gær. Hlynur Friðriksson varð öruggur Akureyrarmeistari, með 33 punkta.

Verðlaunahafar í 5. flokki karla:

  • Hlynur Friðriksson 9+15+9 = 33 punktar
  • Ólafur Elvar Júlíusson 8+8+6 = 22 punktar
  • Magnús G. Gunnarsson 7+8+6 = 21 punktur

Í öldungaflokki kvenna 50+ var þriðji og síðasti hringurinn leikinn í dag. Þetta var fjölmennasti kvennaflokkurinn en ellefu konur voru mættar til leiks. Birgitta Guðjónsdóttir var með forystuna alla keppnisdagana og efstu þrjár í lokahollinu á lokadeginum voru svo samrýmdar að þær léku allar á sama skorinu!

Verðlaunahafar í öldungaflokki kvenna 50+:

  • Birgitta Guðjónsdóttir 82+85+90 = 257 högg
  • Guðrún Gísladóttir 87+83+90 = 260 högg
  • Fanný Bjarnadóttir 85+87+90 = 262 högg

Í öldungaflokki karla 50+ var þriðji og síðasti hringurinn líka leikinn í dag og þar hafði Ólafur Auðunn Gylfason tveggja högga forystu á Guðmund Sigurjónsson fyrir lokahringinn. Eftir fjórar holur í dag voru þeir orðnir jafnir og síðan seig Guðmundur fram úr og tryggði sér Akureyrarmeistaratitilinn.

Verðlaunahafar í öldungaflokki karla 50+:

  • Guðmundur Sigurjónsson 72+77+74 = 223 högg
  • Ólafur Auðunn Gylfason 73+74+78 = 225 högg
  • Konráð Vestmann Þorsteinsson 75+79+74 = 228 högg

Í öldungaflokki karla 70 ára og eldri lauk keppni í gær þegar þriðji hringur var spilaður. Heimir Jóhannsson hampaði þar Akureyrarmeistaratitlinum en hann lék best allra 11 keppendanna alla keppnisdagana og vann með yfirburðum.

Verðlaunahafar í öldungaflokki karla 70+:

  • Heimir Jóhannsson 76+78+74 = 228 högg
  • Guðmundur E. Lárusson 80+87+87 = 254 högg
  • Jón Halldórsson 90+85+86 = 261 högg

Keppni lauk einnig í gær hjá 14 ára og yngri en þar voru 8 keppendur. Kristófer Áki Aðalsteinsson vann þar með yfirburðum og er Akureyrarmeistari. Bjarki Þór Elíasson fær silfurverðlaun og þeir Sesar Blær Gautason og Andri Mikael Steindórsson skipta með sér bronsinu.

Verðlaunahafar í flokki 14 ára og yngri:

  • Kristófer Áki Aðalsteinsson 66+73+71 = 210 högg
  • Bjarki Þór Elíasson 84+75+77 = 236 högg
  • Sesar Blær Gautason 87+79+76 = 242 högg
  • Andri Mikael Steindórsson 80+81+81 = 242 högg

Lokastöðu allra keppenda í öllum keppnisflokkum má sjá á þessari síðu.

- - -

Skapti Hallgrímsson og Ármann Hinrik litu við á Jaðarsvelli og mynduðu, Skapti á opnunardeginum og Ármann Hinrik á lokadeginum.

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45

Drífum í að stytta hringveginn

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
02. júlí 2026 | kl. 14:30

Við ætlum að leggja okkar af mörkum

Óðinn Svan Óðinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifa
25. júní 2026 | kl. 17:00