Fara í efni
Skip dagsins

Arfur Akureyrarbæjar boðar til íbúafundar

Akureyrarvöllur um verslunarmannahelgina á síðasta ári þegar svokallaðir Sparitónleikar fóru fram. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Félagasamtökin Arfur Akureyrarbæjar boða til opins íbúafundar á morgun, þriðjudaginn 21. apríl, kl. 17:00 í Hömrum, Menningarhúsinu Hofi, um skipulagsmál, menningarminjar og ásýnd Akureyrarbæjar.

Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að á dagskrá verði stutt erindi frá samtökunum um tilgang fundarins og kynning frá skipulagsdeild Akureyrarbæjar „á forsendum og skilmálum hugmyndasamkeppni sem nú stendur yfir um framtíð Akureyrarvallar.“ Því næst verða pallborðsumræður með þátttöku fulltrúa þeirra stjórnmálaframboða sem bjóða fram í komandi bæjarstjórnarkosningum og fulltrúa skipulagsdeildar þar sem íbúum gefst tækifæri til að beina spurningum til fulltrúanna. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur er fundarstjóri og stýrir pallborðsumræðum.

„Félagasamtökin Arfur Akureyrarbæjar voru stofnuð á 160 ára afmæli Akureyrar, þann 29. ágúst 2022, af hópi áhugafólks sem hafði áhyggjur af því að menningararfur, staðareinkenni og saga bæjarins fengju sífellt minna vægi í skipulagsákvörðunum. Frá stofnun hafa helstu markmið samtakanna verið að vekja og viðhalda áhuga á gildi menningarminja og benda á þau tækifæri sem felast í húsvernd og uppbyggingu þar sem sýnd er virðing fyrir sögulegu samhengi byggðarinnar í ákvörðunum um skipulagsmál,“ segir í tilkynningunni

Skilaboð Arfs Akureyrar til Akureyringa eru skýr: „Bæjarbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og taka virkan þátt í umræðum um mikilvæg mál sem varða alla.“