Fara í efni
Fréttir

Yfir 87 þúsund gestir – opið í 113 daga

Frábær vetur í Hlíðarfjalli að baki. Mynd: Hlíðarfjall.

Einum besta skíðavetri í Hlíðarfjalli í langan tíma lauk síðastliðinn laugardag þegar síðasta formlega opnun skíðasvæðisins var á lokadegi Andrésar Andarleikanna. Skíðasvæðið var opið í 113 daga í vetur, ásamt aukadögum á göngusvæðinu. 

Metþátttaka var í leikunum, sem kórónaði frábæran og viðburðaríkan vetur. „Veturinn hjá okkur var alveg frábær og byrjaði strax snemma í desember með flottum aðstæðum á göngusvæðinu okkar og svo opnuðu lyfturnar okkar rétt fyrir jólin. Snjóalög héldust nokkuð góð í vetur en svo þegar mars gekk í garð fengum við heldur betur sendingu og púðursnjór sem gladdi marga fram í miðjan apríl,“ segir í pistli á Facebook-síðu skíðasvæðisins. „Heimsmetsstökkið“ kórónaði svo frábært tímabil í fjallinu. Gestir í fjallinu voru rúmleg 87 þúsund, sem er mun meira en undanfarin ár. 

Þó formlegri opnun sé lokið er enn talsverður snjór á svæðinu og verður eitthvað um æfingar áfram. Göngusvæðið verður áfram troðið á mánudögum og föstudögum meðan aðstæður leyfa.