Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
13.06.2025 kl. 07:00

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 240. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin?
Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Margir könnuðust við staðinn og sendu ábendingu. Þetta eru Brettingsstaðir á Flateyjardal, landnámsjörð norðaustanmegin á Flateyjarskaga. Kirkjan á myndinni var vígð árið 1897 og kirkjugarður umhverfis kirkjuna tekinn í notkun í framhaldinu. Eftir að byggð lagðist af á Flateyrardal árið 1953 var kirkjan tekin niður og endurreist í Flatey á Skjálfanda en eftir stóð grunnur kirkjunnar og kirkjugarðurinn.