Fara í efni
Fréttir

World Class: Miklar breytingar í Strandgötu

Spennandi uppfærsla verður á World Class í Strandgötu á þessu ári. Þar verður settur upp Pilates Club salur sem og infrarauður hóptímasalur. Þá mun núverandi tækjasalur stækka. Mynd: SNÆ

Miklar breytingar eru fram undan hjá World Class í Strandgötu á þessu ári. Meðal helstu nýjunga eru stærri tækjasalur, nýr infrarauður hóptímasalur og sérstakur Pilates Club salur með svokölluðum reformer-bekkjum.

Framkvæmdirnar eru að sögn Karenar Ingimarsdóttur, stöðvarstjóra World Class á Akureyri, liður í því að uppfæra aðstöðuna og mæta breyttum þörfum viðskiptavina. „Það þarf alltaf að breyta og bæta og fylgja tímanum, og við erum einfaldlega að fara í það núna,“ segir Karen.

Nýir salir og aukin aðstaða

Stærstu breytingarnar felast í því að núverandi tækjasalur verður stækkaður og fær ný tæki en samhliða þeirri breytingu verða tveir nýir salir teknir í notkun. Annars vegar verður rýmið sem nú hýsir Aqua Spa tekið undir nýjan hóptímasal þar sem verður hægt að bjóða upp á „heita tíma“ sem hafa notið mikilla vinsælda. Þá verður útbúinn Pilates Club salur með reformer-bekkjum í rýminu bak við afgreiðsluna þar sem boðið verður upp á markvissa Pilates-tíma en Karen segir mikla eftirspurn vera eftir slíkri aðstöðu. „Það er mikil eftirspurn eftir heitum sölum og líka fyrir Pilates á þessum bekkjum, þetta er orðið gríðarlega vinsælt.“

Aqua Spa lokað

Samhliða breytingunum verður starfsemi Aqua Spa lögð niður í núverandi mynd. Spa-ið verður opið út maí og eru viðskiptavinir hvattir til að nýta gjafabréf og inneignir fyrir þann tíma. Eftir lokun munu gjafabréf áfram gilda í Laugar Spa í Reykjavík og í verslunum World Class á Akureyri og í Kringlunni.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í sumar en ekki liggur fyrir nákvæm dagsetning hvenær nýja aðstaðan verður tilbúin en vonandi seinni hluta ársins. „Við erum bara að uppfæra stöðina og gera hana enn betri. Þetta eru virkilega skemmtilegar breytingar,” segir Karen spennt.