World Class kaupir Strandgötu 14
Eignarhaldsfélagið Í toppformi, sem er systurfélag World Class, hefur keypt fasteignina við Strandgötu 14 á Akureyri, þar sem World Class hefur rekið líkamsræktarstöð um árabil. Seljandi er fasteignafélagið Heimar og er greint frá sölu fasteigna félagsins í tilkynningu til Kauphallarinnar, þar á meðal umræddri fasteign á Akureyri.
Í frétt Viðskiptablaðsins kemur fram að kaupverðið sé 685 milljónir króna.
Góð staðsetning
Fasteignin við Strandgötu 14 stendur við eina helstu umferðaræð Akureyrar, skammt frá miðbænum, menningarhúsinu Hofi og hafnarsvæðinu. Einnig er stutt í verslun, þjónustu og aðra starfsemi sem byggst hefur upp á svæðinu á undanförnum árum. Staðsetning hússins þykir því henta vel fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi.
Farsælt viðskiptasamband
Rúnar Hermannsson Bridde forstöðumaður útleigumála hjá Heimum staðfestir viðskiptin í samtali við akureyri.net.
„Heimar og World Class hafa átt farsælt viðskiptasamband til fjölda ára og eru meðal annars að leigja hjá okkur á fleiri stöðum, þar á meðal við Skólastíg á Akureyri. Má segja að þessi sala sé hluti af því góða samstarfi. Jafnframt, eins og komið hefur fram í kynningum félagsins, er eignasafn okkar í stöðugri endurskoðun og við erum jafnt tilbúin til að selja eignir úr safninu þegar tilefni er til sem og að bæta við eignum,“ segir Rúnar Hermannsson Bridde.