Mannlíf
Vörur Örnu hafa selst fyrir 1,3 milljónir
29.10.2026 kl. 10:00
Arna María Sigurbjargardóttir í NorðurHjálp. Sultukrukkurnar hennar blasa við í hillum þegar komið er inn í nytjamarkaðinn. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Arna María Sigurbjargardóttir, einn margra sjálfboðaliða hjá nytjamarkaðnum NorðurHjálp, hefur heldur betur látið hendur standa fram úr ermum undanfarna mánuði. Hún er iðulega við störf á markaðnum við Óseyri yfir daginn en á kvöldin vinnur hún gjarnan að sultugerð og bakar brauð heima í eldhúsi. Allt gefur hún NorðurHjálp þar sem vörur hennar njóta mikill vinsælda; hafa selst eins og heitar lummur og skilað rúmlega 1,3 milljónum króna í kassa nytjamarkaðarins það sem af er ári.
Framtak Örnu Maríu er tímafrekt eins og nærri má geta en hún sér ekki eftir tímanum og að baki býr einlæg löngun til að láta gott af sér leiða. Hún segir þetta sína leið til að styrkja hjálparstarf í samfélaginu sem sé afar mikilvægt. Það að aðstoða þá sem þurfa á stuðningi að halda sé í sínum huga dýrmætara en nokkuð annað.

Arna María Sigurbjargardóttir við fjölbreytt sultuúrvalið í NorðurHjálp. Mynd: Skapti Hallgrímsson
NorðurHjálp hefur það sem af er ári veitt einstaklingum og fjölskyldum í neyð Bónuskort til matarinnkaupa fyrir um 23 milljónir króna eins og akureyri.net greindi frá í síðustu viku. Þá hefur fjöldi fólks fengið aðstoð í formi húsgagna, fatnaðar og matvæla úr matarhorni NorðurHjálpar.
„Það er auðvitað ótrúlega ánægjulegt að geta aðstoðað svona marga, en á sama tíma vitum við að þörfin er mikil og við sjáum hana aukast. Fólk hefur einfaldlega minna á milli handanna og það er sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að láta enda ná saman,“ sagði Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir, ein þeirra sem standa að NorðurHjálp.
- Umfjöllun akureyri.net í síðustu viku: