Fara í efni
Menning

Viltu láta ljós þitt skína á Akureyrarvöku?

Frá Akureyrarvöku. Ljósmynd: Kristrún Hrafnsdóttir

Akureyrarvaka verður haldin hátíðleg 26.-28. ágúst næstkomandi og hefur Akureyrarbær auglýst eftir fjölbreyttum hugmyndum að spennandi dagskrá og viðburðum.

„Þetta er tilvalið tækifæri fyrir skapandi einstaklinga og listafólk til að láta ljós sitt skína á Akureyrarvöku sem er eins konar afmælisveisla Akureyrarbæjar,“ segir á vef sveitarfélagsins. Þar kemur fram að góðum hugmyndum verði veittur stuðningur á bilinu 50.000 til 300.000 krónur.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á www.akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Smellið hér til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst.

Nánari upplýsingar veitir Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála, netfang hans er almara@akureyri.is.