Fara í efni
Fréttir

Vill einhver leigja elsta hús Akureyrar?

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Akureyrarbær hefur auglýst Laxdalshús til leigu. Húsið, sem stendur við Hafnarstræti 11, var byggt árið 1795 og er elsta hús bæjarins.

Laxdalshús var reist sem íbúðarhús „en hefur á undanförnum árum m.a. gegnt hlutverki veitingastaðar, skrifstofuhúsnæðis, sýningarrýmis og æfingaraðstöðu fyrir kammerkór,“ segir í tilkynningu á vef bæjarins.

Húsið er 134 fermetrar og við það stendur 18 fermetra bakhús. „Húsið er friðað og fyrirhuguð starfsemi þarf að taka mið af því,“ segir á vef Akureyrarbæjar.

Nánari upplýsingar á vef bæjarins: Laxdalshús til leigu