Fréttir
Viðreisn býður til „opins samtals“ í dag
28.08.2026 kl. 16:30
Viðreisn heldur fund á Hótel KEA í dag, föstudag, kl. 18:00, þar sem Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður flokksins, og Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, sitja fyrir svörum varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna á morgun og mögulegan samning við Evrópusambandið.
Enn að velta fyrir þér hvað þú ætlar að kjósa 29. ágúst? er spurt í tilkynningunni. Síðan segir:
Viðreisn býður til opins samtals á Hótel KEA, föstudaginn 28. ágúst kl. 18:00.
Þar getur þú spurt Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra og formann Viðreisnar, og Ingvar Þóroddsson, þingmann Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, beint um það sem skiptir þig máli, og fengið skýr svör áður en þú gerir upp hug þinn fyrir laugardaginn.
- Hvaða tækifæri felast í samningi fyrir Ísland?
- Um hvað getum við samið?
- Hvað er í húfi?
- Hvað gerist ef þjóðin segir já?
Þann 29. ágúst kjósum við um hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju. Að loknum viðræðum fengi þjóðin samninginn í hendurnar og tæki sjálf endanlega ákvörðun. Komdu með spurningarnar og efasemdirnar. Hlustaðu, spurðu og taktu svo þína eigin upplýstu ákvörðun