„Við segjum góða nótt við þær allar nætur“
Ungt par á Akureyri, Kolbrún María Garðarsdóttir og Egill Rúnar Halldórsson, hefur mátt þola meira á þessu ári en margir á heilli ævi. Móðir Kolbrúnar, Sólveig Hulda Valgeirsdóttir, varð bráðkvödd 22. febrúar aðeins fimmtug að aldri og um miðjan maí eignuðust Kolbrún María og Egill Rúnar dóttur sem dó degi síðar. Þau sögðu sögu sína í mjög áhrifaríku viðtali í Landanum í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi.
„Kolbrún María Garðarsdóttir og Egill Rúnar Halldórsson byrjuðu þetta ár ásamt stórfjölskyldu Kolbrúnar á Tenerife. Sólveig Hulda, mamma Kolbrúnar, hafði fagnað fimmtugsafmæli á liðnu ári og mikil tilhlökkun ríkti hjá fjölskyldunni því von var á þremur börnum á nýja árinu,“ segir í kynningu Eddu Sifjar Pálsdóttur á þættinum á vef RÚV.

Edda Sif heldur áfram:
Fjölskyldan var í sólinni fram í janúar og þann 17. febrúar kom fyrsta barnið í heiminn. Sólveig Hulda fór suður til að hitta nýja barnabarnið og fylgja yngstu dótturinni í hokkíleik. „Þetta var svo venjuleg helgi. Mamma fór oft suður að hitta eldri dóttur systur minnar og fara á hokkíleiki hjá systrunum. Svo bara kemur sunnudagur og þá breytist allt. Þær fara glaðar að sofa og svo vaknar hún ekki aftur.“ Sólveig Hulda sem starfaði sem deildarstjóri lyflækningardeildar á Sjúkrahúsinu á Akureyri varð bráðkvödd fimmtug að aldri. Hún var gift Garðari Guðmundi Sigurðssyni tannlækni og þau áttu þrjár dætur.
Þriðjungur meðgöngunnar var að baki og tilhugsunin um komu litlu dótturinnar kom þeim í gegnum erfiða tíma, segir Edda Sif. Hún var væntanleg í maí og þegar þar var komið sögu leit allt vel út og parið var spennt.
„Já þetta var eiginlega bara draumadagur þangað til þetta varð að versta degi í heimi,“ segir Kolbrún. Fæðingin gekk vel framan af en svo lenti litla stúlkan í axlarklemmu og sat föst í um þrjár mínútur. Þegar hún kom út fannst enginn púls.
Litla stúlkan sýndi einkenni alvarlegs súrefnisskorts í heila og fjölskyldunni var flogið suður með sjúkraflugi. Fljótt kom í ljós að hún myndi ekki lifa af. Fjölskylda parsins unga stóð nú aftur á stuttum tíma frammi fyrir óbærilegum missi og sameinaðist á Landspítalanum í sérstöku Gleym mér ei - herbergi sem hugsað er fyrir aðstæður sem þessar. Litla stúlkan var skírð Sólveig Hulda í höfuðið á ömmu sinni.
Kolbrún María segir í viðtalinu:
„Maður eiginlega veit ekkert hvað er framundan. Við ákváðum strax að halda áfram að lifa lífinu fyrir þær. Maður var búinn að hugsa allt annað líf en svo er þetta raunveruleikinn núna, það tekur alveg á. Það er mikilvægt þegar maður missir einhvern svona mikilvægan að reyna að sjá það fallega í því og vera þakklátur fyrir það sem maður fékk og hafði. Við Egill segjum góða nótt við þær allar nætur og pössum að þær séu alltaf með.“
- Smellið á myndina hér að neðan til að horfa á umfjöllunina um Kolbrúnu Maríu og Egil Rúnar.
