„Við erum klárir í næstu áttatíu ár“
Möl og sandur á Akureyri fagnar 80 ára afmæli sínu á þessu ári og þrátt fyrir virðulegan aldur er hvergi slegið af og fyrirtækið stendur á ákveðnum tímamótum á afmælisárinu. Starfsemi Malar og sands var flutt að Sjafnarnesi 9 í sumar, eins og akureyri.net sagði frá í lok júní – Möl og sandur flytur að Sjafnarnesi – þar sem allur tækjabúnaður til steypublöndunar er nýr og afkastamikill. Þar verður opið hús fyrir gesti og gangandi á morgun, laugardag, milli kl. 13 og 16.
„Við keyptum allt saman nýtt“
Hjörtur Narfason, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir í samtali við akureyri.net að í nýju stöðinni sé hægt að hræra 2,75 rúmmetra af steypu í einu. „Í gömlu stöðinni gátum við hrært 1,15 rúmmetra, þannig að þetta er meira en helmingsaukning í afkastagetu,“ segir Hjörtur. Möl og sandur hafði lengst af verið með starfsemi sína við Súluveg 2 en eftir því sem bærinn hefur stækkað í gegnum áratugina hefur verið ljóst að svona umfangsmikilli iðnaðarstarfsemi þyrfti að finna annan stað. Og við flutningana í Sjafnarnes gafst tækifæri til endurnýjunar. „Við keyptum allt saman nýtt. Það eina sem við flytjum úr gömlu stöðinni yfir í þá nýju verða sementstankarnir. Við ætlum að nota þá undir bæði kísilryk og anhýdrít, til þess að auka vöruúrvalið hjá okkur,“ segir Hjörtur.

Frá fyrstu árunum við Súluveg.
Vel er hugað að umhverfisþáttum og endurnýtingu í nýju stöðinni. „Síðan þegar við erum að þrífa steypuhrærivélina og bílana þá fer útskolið í sérstaka endurvinnslustöð. Þá getum við notað sementseðjuvatnið í næstu hrærur. Og fáum sandinn og perluna bara nýþvegna út úr tækinu og getum notað aftur. Allt samkvæmt nýjasta Evrópustaðli, stöðin gæti þess vegna verið í miðri Berlínarborg og hrært,“ útskýrir Hjörtur.
Alltaf næg verkefni
Starfsemi fyrirtækisins fluttist að mestu í Sjafnarnes í júlí sl. en Hjörtur segir ekki endanlega dagsetningu vera komna á það hvenær lóðinni við Súluveg verði skilað formlega til Akureyrarbæjar. „Við erum að stefna að því að gamla steypustöðin verði farin fyrir næsta sumar en við þurfum að nota bílaverkstæðið eitthvað aðeins lengur,“ segir Hjörtur og bætir við að gamla steypustöðin fari bara í brotajárn. „Enda alveg búin að skila sínu, hún er ábyggilega '67 módel. Og ef nýja stöðin endist jafn lengi og þessi gamla þá erum við bara í góðum málum,“ segir hann.

Athafnasvæði Malar og sands við Súluveg síðustu áratugi.
Aðspurður segir Hjörtur að verkefnin séu alltaf næg og nefnir stór byggingaverkefni sem eru að fara í gang við stúdentagarða hjá Félagsstofnun stúdenta og stækkun Sjúkrahússins á Akureyri.„ Og náttúrlega gagnaverið. Þetta eru gríðarlegar framkvæmdir þar og mörg hús og það er slatti eftir þannig að það er bara ánægjulegt,“ segir Hjörtur og bætir við að markaðurinn hafi dálítið verið að færast úr íbúðabyggingum í opinberar byggingar.
Allir velkomnir á opið hús á laugardag
Hann segir að sveiflurnar í byggingabransanum séu mun vægari hér fyrir norðan en á höfuðborgarsvæðinu.„ Sveiflurnar á höfuðborgarsvæðinu hafa alltaf verið miklu meiri heldur en hérna fyrir norðan. Ef þeir eru að sveiflast svona 30% í Reykjavík, þá erum við svona kannski í 7-8% eitthvað svoleiðis,“ segir Hjörtur og horfir bjartsýnn til framtíðar á 80 ára afmælinu. „Það eru ekki mörg fyrirtæki í bænum sem hafa náð 80 árum, því miður. En við erum klárir í næstu 80 ár,“ segir hann kankvíslega að lokum.
Eins og áður sagði verður opið hús hjá Möl og sandi í Sjafnarnesi 9 á morgun, laugardag, kl. 13-16. Þar býður fyrirtækið viðskiptavinum, samstarfsaðilum, fyrrverandi starfsmönnum og öllum áhugasömum að koma og kynna sér starfsemina, hitta starfsfólkið og njóta léttra veitinga.
Nokkrir punktar úr sögu Malar og sands og myndir úr sögu fyrirtækisins
Hjörtur tók saman nokkra punkta úr 80 ára sögu Malar og sands á Akureyri og með þeim fylgja nokkrar myndir úr sögunni.
- Félagið var stofnað í maí 1946 : „H.f. Möl og sandur, Akureyri. Tilg.: Að starfrækja sandnám og verzla með sand og möl. Hlutafé: kr. 50.000,00. Stjórn: Guðmundur Jónsson, Hlíðarv. 6, Karl Friðriksson verkstj., Strandg. 45, Ingimundur Árnason, Oddeyrarg. 50.“ (auglýsing úr Frjálsri verzlun 1946).

- Árið 1956 fær Möl og sandur úthlutað lóð við Súluveg undir starfsemi sína. Strax var hafist handa við að byggja mölunar- og flokkunaraðstöðu fyrir fylliefni. Brjótur og malarharpa voru keypt frá Þýskalandi, sem eru enn í dag í þessu húsi. Félagið var á þessum tíma í eigu Hólmsteins Egilssonar, Kaupfélags Eyfirðinga, Akureyrarbæjar og nokkurra einstaklinga.

- Árið 1971 keypti félagið steypustöð sem flutt hafði verið til landsins þegar fyrsti áfangi álversins í Straumsvík var byggður. Þetta var 1500 lítra pönnuhrærivél frá Fejrmet í Svíþjóð, efnishólf (turn með 6 hólfum, hvert tók um 45 tonn af möl eða sandi) og tvö 60 tonna sementssíló. Steypubílarnir voru notaðir herbílar af Keflavíkurflugvelli sem hafði verið breytt til að hægt væri að setja steyputunnu aftan á þá. Tunnurnar tóku 3-5 rúmmetra af steypu. Fyrirtækið átti líka krana sem mikið var notaður við að hífa steypu. Steypustöðin var tekin í notkun árið 1972.

- Árin 1977-1979 eru þau umfangsmestu í sögu fyrirtækisins. Félagið var í efnisvinnslu og -sölu, gatnagerð og grunnum auk þess sem einingaframleiðsla (holplöur, TTS bitar, filegran) og hellur og klóakrör voru framleidd á Súluvegi. Á þessum tíma störfuðu um 70 manns hjá fyrirtækinu þegar mest var. Fyrir utan það sem framleitt var af söluvörum þá voru sem dæmi rekið öflugt bílaverkstæði, járnsmíða- og renniverkstæði og mötuneyti. Litlar rútur óku um bæinn snemma að morgni og söfnuðu starfsfólki saman og í lok dags voru starfsmenn keyrðir heim. Sem dæmi þá voru framleiddir 24.000 rúmmetrar af steypu árið 1977 í stöðinni á Súluvegi.

- Árið 1983 er byggt en eina ferðina við á Súluveginn. Þá var tekið í notkun nýr skrifstofuhluti. Á þeim tíma átti Olís hlut í Möl og sandi. Óli í Olís (sem kenndur var við félagið eftir að hann keypti Olís) kom norður þegar skrifstofuhlutinn var tekin í notkun. Eftir að hafa fengið kynningu á hinum nýju húsakynnum þá segir Óli við Hólmstein, sem var mjög stoltur af nýju skrifstofunum: „Hér verði peningarnir ekki til, þetta er bruðl að setja svona mikla peninga í skrifstofur!“

Þarna var verið að steypa sökkla í grunninum að Vestursíðu 4 en Volvoinn lenti í smávegis veseni.
- 1998 eru gerðar breytingar á steypustöðinni en þá var settur upp tölvubúnaður til að stjórna blöndun á steypu. Þetta þótti mikil framför því áður voru notuð svokölluð gatakort (hart spjald með ákveðinni gataröð) fyrir hverja steyputegund, sem stungið var í rauf og þá gat blöndun farið af stað. Tölvubúnaðurinn leysti þetta af hólmi. Það er merkilegt að segja frá því að þessi tölvubúnaður sem settur var upp 1998 er enn í gangi og virkar vel. Meira að segja músin sem er við tölvuna er enn í lagi!
- Árið 2003 keypti BM Vallá hf. Möl og sand. Það gerðist í framhaldi af því að Víglundur Þorsteinsson (eigandi BM Vallár) lenti með Hólmsteini Hólmsteinssyni í flugi frá Akureyri til Reykjavíkur. Þegar þeir lentu í Reykjavík var búið að semja um kaupverð.

Fyrsta steypa í stöðvarhús Glerárvirkjunar II handan árinnar. Ekki langt að fara með steypuna!
- Árið 2010 fór rekstur BM Vallár í þrot um mánaðamótin apríl/maí. Á þeim tíma voru framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng á fullu og hafði BM Vallá verið með samning við verktakann Metrostav um steypuafhendingu. Hjörtur Narfason var á þessum tíma framkvæmdastjóri hjá BM Vallá fyrir Norður- og Austurland. Hann fékk með sér þá Garðar Má Sverrisson og Hjalta Jónsson, sem unnu hjá Möl og sandi, og stofnuðu þeir félagið HGH verk ehf. til að sjá um steypuframleiðslu fyrir Héðinsfjarðargöng. Í framhaldinu gerðu þeir síðan tilboð í eignir þrotabúsins á Akureyri og fengu tilboðið samþykkt.

Nýtt athafnasvæði Malar og sands við Sjafnarnes neðst fyrir miðri mynd. Mynd: Axel Þórhallsson