Verslunarmannahelgin: Aukinn akstur strætó
Senn líður að verslunarmannahelginni og undirbúningur að sjálfsögðu kominn á fullt á ýmsum sviðum. Skipuleggjendur Einnar með öllu, fjölskylduhátíðarinnar sem fest hefur sig í sessi á Akureyri, huga nú að samgöngum og bílastæðum innanbæjar með öflugri hætti en áður.
Strætisvagnar Akureyrar munu í samstarfi við skipuleggjendur Einnar með öllu bjóða upp á mjög aukna þjónustu um helgina í því skyni að draga úr umferð einkabíla og koma fólki öruggu til síns heima að lokinni skemmtidagskrá á laugardags- og sunnudagskvöld. Gestir hátíðarinnar, heimafólk og gestir bæjarins, eru því hvattir til að nýta sér umhverfisvænan samgöngumáta, taka strætó, hjóla eða ganga. Vissulega verður bílastæðum fjölgað við hátíðarsvæði í miðbænum, en skipuleggjendur biðla til fólks að sýna tillitssemi og leyfa P-merktum bílum fólks sem á óhægt um gang að njóta forgangs, sem og barnafjölskyldum.
Að jafnaði gengur aðeins leið 6 rangsælis um bæinn um helgar, frá frá hádegi fram til kl. 19, en um komandi verslunarmannahelgi verður breyting á.
- Leið 1, 3, 5 og 6 munu hefja akstur um hádegisbil og aka fram á kvöld, misjafnlega lengi þó, bæði á laugardag og sunnudag.
- Boðið verður upp á akstur strætisvagna til og frá ákveðnum stöðum í tengslum við kvöldtónleikana á laugardag og sunnudag, þannig að fólk geti lagt bílum sínum á ákveðnum stöðum og komist þaðan og þangað aftur eftir tónleika. Þeir vagnar fara ekki hefðbundnar leiðir strætisvagnanna heldur aðeins á tvo til þrjá staði hver vagn.
- Leið A: Miðbær - Síðuskóli - Glerárskóli
- Leið B: Miðbær - Skautahöllin - Naustaskóli - Hamrar
- Leið C: Miðbær - Giljaskóli - Bílaklúbbur Akureyrar
- Leið D: Miðbær - Hrísalundur - VMA
- Að auki verður boðið upp á akstur í Kjarnaskóg á Skógardeginum, frá því um hádegi og fram eftir degi á sunnudag.
Ítarlegri upplýsingar um leiðakerfið um helgina má finna á vefsíðu Einnar með öllu.
Áfram er frítt fyrir farþega með Strætisvögnum Akureyrar eins og aðra daga.