Verslun Ormsson og HTH opnuð á Norðurtorgi

Ný og glæsileg verslun Ormsson og HTH var opnuð á Norðurtorgi á Akureyri í morgun. „Hágæða innréttingar frá HTH ásamt fjölbreyttu úrvali raftækja frá fjölda þekktra framleiðenda fá nú að njóta sín í nýju og betra rými,“ segir í tilkynningu.
„Þetta hefur gengið vonum framar. Að sjálfsögðu er mikil vinna að baki og að mörgu að huga þegar kemur að svona stóru verkefni en við erum afar sátt með útkomuna og hlökkum til að frumsýna nýju verslunina,“ er haft eftir Kjartani Sigurðssyni, forstjóra Ormsson.
Verslun Ormsson var áður til húsa við Furuvelli 5 en vegna flutningsins hefur staðið yfir stór rýmingarsala þar sem fjöldi vörumerkja var á veglegum afslætti, segir í tilkynningunni.
Röð var fyrir utan verslun Ormsson áður en hún var opnuð í morgun.
Opnunarhátíð fram á sunnudag
„HTH innréttingar eru nú loks fáanlegar á Norðurlandi og erum við afar spennt að bjóða Norðlendinga velkomna í nýja sýningarsalinn,“ bætir Kjartan við.
„Sérstök opnunarhátíð verður haldin á Norðurtorgi dagana 8.–11. maí þar sem fjöldi spennandi opnunartilboða verða í gangi, boðið upp á nýbakaðar vöfflur og rjúkandi kaffi fyrir fullorðna fólkið og ís fyrir börnin.“ Fram kemur að fyrstu 20 viðskiptavinir nýju verslunarinnar hafi fengið glæsilegan gjafapoka. „Einnig verður í gangi myndlistarsýning með verkum eftir Ella Egils í versluninni.“
Verslun Ormsson er í nýbyggingunni norðan við „gamla“ húsið á Norðurtorgi – í rými á milli Akureyrarapóteks og Vínbúðarinnar.
Hægt að næla í veglega vinninga
„Gestir geta svo tekið þátt í leik á staðnum og eiga möguleika á að vinna HTH eldhúsinnréttingu að verðmæti allt að 1,5 milljónir króna, 50 tommu Samsung Frame sjónvarp, Nutribullet blandara og fleira, svo það er óhætt að segja að það verði nóg um að vera í tilefni opnunarinnar,“ segir Hjalti Jónsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Ormsson og HTH.
„Tölvuleikjaunnendur ættu ekki að láta sig vanta á opnunarhátíðina því við ætlum að auki að vera með spennandi Mario Kart 8 keppni í nýju leikjarými verslunarinnar þar sem sigurvegarinn fær nýjustu Nintendo Switch 2 leikjatölvuna í verðlaun,“ bætir Hjalti við.
Verslunin er opin frá kl. 10.00 til 18.00 í dag og á morgun en kl. 11.00 til 16.00 um helgina.