Fara í efni
Menning

Verkið Góðan daginn faggi sýnt á Akureyri

Axel Ingi Árnason tónskáld, til vinstri, og Bjarni Snæbjörnsson leikari.

Leikhópurinn Stertabenda og Þjóðleikhúsið leggja land undir fót í vikunni í samstarfi við Samtökin ‘78 þegar leiksýningin Góðan daginn faggi fer í hringferð um landið.

Boðssýningar verða fyrir elstu bekki grunnskóla og auk þess almennar sýningar á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Neskaupstað og Patreksfirði. 

  • Almennar sýningar, þær fyrstu í ferðinni, verða á Akureyri 17. og 18. september í Samkomuhúsinu
  • Krökkum í elstu bekkjum grunnskóla á Akureyri boðið á sýningu í næstu viku
  • Allir höfundar verksins ólust upp á landsbyggðinni og vilja vinna gegn hatursorðræðu og einangrun hinsegin unglinga
  • 22 sýningar á 3 vikna tímabili og búist við 2.000-3.000 áhorfendum
  • Leikferðin er framkvæmd með góðum stuðningi frá List fyrir alla.

„Góðan daginn faggi sló sannarlega í gegn í Þjóðleikhúsinu á liðnu leikári, með yfir 40 uppseldum sýningum, einróma lofi gagnrýnenda og Grímutilnefningum auk þess sem lagið Næs úr sýningunni var lag Hinsegin daga 2022,“ segir í tilkynningu.

Höfundar verksins eru allir af landsbyggðinni: Bjarni Snæbjörnsson leikari er frá Tálknafirði, Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri er úr Hrísey og Axel Ingi Árnason tónskáld úr Eyjafjarðasveit. „Það er einlæg von þeirra að með sýningum á verkinu í elstu bekkjum grunnskóla og með almennum sýningum og umræðu sem það skapar verði hægt að vinna gegn einangrun hinsegin unglinga, ofbeldi, fordómum og hatursorðræðu sem hefur sýnt sig að undanförnum að færist í aukana.“

Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. „Eftir vandasaman leiðangur um innra líf sitt, fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað. Verkið er byggt á dagbókum Bjarna Snæbjörnssonar, leikara frá yngri árum til dagsins í dag.“