Veist þú hvar barnið þitt verður um versló?
Veist þú hvar barnið þitt eða unglingurinn þinn verða um verslunarmannahelgina, með hverjum og að gera hvað?
Þannig er spurt í samfélagsmiðlaherferð á vegum Akureryarbæjar í tengslum við fjölskylduhátíðina Eina með öllu sem fram fer á Akureyri um helgina. Reglulega hafa birst myndbönd á miðlum bæjarins þar sem þekktir einstaklingar úr bæjarlífinu, stjórnmálum, viðskiptum, menningargeiranum, íþróttum og víðar hafa spurt þessarar spurningar.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri reið á vaðið og spurði: „Veist þú hvar barnið þitt er?“
Í myndböndunum birtist sami textinn sem ætlað er að ítreka ábyrgð foreldra á börnum, hvar þau eru, hvert þau fara, hvað þau gera og með hverjum: „Hvar er barnið þitt? Börn eru börn til 18 ára aldurs og eiga ekki að vera eftirlitslaus á útihátíðum eða annars staðar.
Þú berð ábyrgð á barninu þínu.“
- Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri
„Er barnið þitt öruggt? Er það í aðstæðum sem það ræður fyllilega við? Gætum vel að því.“ - Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri
„Ungmennin okkar þurfa frelsi, en þau þurfa líka foreldra sem vita hvar þau eru. Fylgstu með, spurðu og vertu til staðar.“ - Ellert Örn Erlingsson, forstöðumaður íþróttamála Akureyrarbæjar
„Við skulum ekki senda börnin og unglingana eftirlitslaus á útihátíðir. Sýnum stamstöðu og ábyrgð. Vinnum þetta saman.“
Ellert Örn fer með sinn texta sitjandi undir stýri og ekur svo af stað þegar hann hefur lokið máli sínu. Í athugasemd við myndbandið má sjá ábendingu um að rétt væri að Ellert myndi spenna bílbeltið ... - Heiðrún Sigurðardóttir garðyrkjufræðingur
„Sendum ekki börnin okkar og unglingana eftirlitslaus á útihátíðir, af því það erum við sem berum ábyrgðina.“ - Markús Máni knattspyrnumaður
„Veist þú hvar unglingurinn þinn verður um versló, að gera hvað og með hverjum?“ - Sesselja Ingibjörg Barðdal, framkvæmdastýra Driftar EA
„Eruð þið ekki örugglega með það á hreinu hvar unglingurinn ykkar verður um versló? Ef ekki, þá hvet ég ykkur til að taka spjallið.“ - Magni Ásgeirsson tónlistarmaður
„Veist þú hvar unglingurinn þinn er, hvað hann er að gera og með hverjum, um helgina? Hringdu í hann!“ - Davíð Rúnar Gunnarsson, Viðburðastofu Norðurlands
„Veist þú hvar unglingurinn þinn verður um verslunarmannahelgina? Taktu upp símann og tékkaðu. Við foreldrarnir berum ábyrgð saman á þessu.“
Hægt að fara beint inn á hvert og eitt myndband á Facebook-síðu Akureyrarbæjar með því að smella á nafn viðkomandi.
Við eina færsluna hefur einn lesandi spurt hvað uppbyggilegt og áhugavert Akureyrarbær geri fyrir unglingana um verslunarmannahelgina.
Sjá einnig í fyrri frétt um tilkynningu þeirra sem standa að hátíðinni: