Vegagerðin vill rauðu hjörtun burt

Vegagerðin hefur sent skipulagsráði Akureyrarbæjar erindi með beiðni um að hjörtu í umferðarljósum Vegagerðarinnar verði fjarlægð og segir ljóst „að hjartalöguð umferðarljós standast hvorki kröfur um umferðarmerki né umferðaröryggi.“ Skipulagsráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum í gær.
Hér er átt við umferðarljós á Hörgárbraut, Glerárgötu og Drottningarbraut, en þessar götur eru allar hluti af þjóðvegi 1, þjóðvegi í þéttbýli, sem er í umsjá Vegagerðarinnar.
Í erindi Vegagerðarinnar segir meðal annars:
„Vegagerðinni hafa borist ábendingar um að hjörtu í umferðarljósum á Akureyri ógni umferðaröryggi. Málið hefur verið tekið til skoðunar innanhúss hjá Vegagerðinni og ljóst er að hjartalöguð umferðarljós standast hvorki kröfur um umferðarmerki né umferðaröryggi. Af öryggisástæðum og til að fyrirbyggja hugsanleg slys fer Vegagerðin því fram á að hjörtun verði fjarlægð úr umferðarljósum sem henni tilheyra.“
Beðið eftir rauðu ljósi. Rauðu hjörtun eru aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem gjarnan fara út á umferðareyjar til að ná myndum, eins og þessi tvö sumarið 2023. Myndin var tekin í Strandgötunni. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Vegagerðin vísar í reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra, nr. 250/2024:
- Í 42. gr. reglugerðarinnar segir í kafla 1180
Almenn umferðarljós eru ljósmerki með hringlaga ljósopum fyrir rautt, gult og grænt ljós. - Í 2. gr. viðauka III með reglugerðinni segir í kafla 1180
Ljósker skulu vera með ljósop sem er 200 mm að þvermáli.
Um þetta segir í erindi vegagerðarinnar að hjartalaga rautt ljós uppfylli ekki kröfur reglugerðar um umferðarmerki og notkun þeirra. Bent er á að rauðu hjörtun séu vinsælt myndefni ferðamanna og af því stafi slysahætta.
„Oft má sjá ferðamenn á miðeyjum fjölfarinna vegamóta taka myndir og sjálfur. Við aðstæður sem þessar geta skapast hættur ef t.d. fólki skrikar fótur og lendir fyrir bíl. Einnig er hætta á því að hjartalaga umferðarljós dragi athygli ökumanna frá akstri, en það er sérstaklega varhugarvert á fjölförnum vegamótum.“
Umferðarljós eiga samkvæmt reglugerð að vera með hringlaga ljósopum fyrir rautt, gult og grænt ljós. Ljósopin skulu vera 20 mm að þvermáli. Mynd: Snæfríður Ingadóttir.
Ekkert ljós, ekkert hjarta
Akureyri.net hefur fjallað um vinsældir ljósanna, meðal annars þegar erlendur ferðamaður, William Forcier, birti mynd af hjartaljósi á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu fyrir rúmum tveimur árum. Þá höfðu um 76 þúsund manns gefið þumal við pistil Williams á tæpri viku, um 17 þúsund höfðu deilt myndinni og athugasemdirnar orðnar 1.700 talsins.
Þá kom fram í frétt okkar í júlí 2023 að ljós á staur sem stóð á flöt milli Hofs og Torfunefsbryggju, með hjartalaga umferðarljósi – sem sérstaklega var ætlað fyrir myndasmiði og áhugasama ferðamenn til að auka umferðaröryggi – hafi ekki logað í nokkurn tíma. Skýringin var að þegar framkvæmdir hófust við Torfunefsbryggjuna hafi þurft að aftengja rafmagnið til staursins. Þá kom fram að staurnum yrði líklega fundinn annar staður á miðbæjarsvæðinu, hugsanlega á horni Kaupvangsstrætis og Skipagötu, á litlu torgi sem þar er.
Tíðindamanni akureyri.net er ekki kunnugt um núverandi staðsetningu túristagötuvitans, en líklegt að hann sé einhvers staðar í geymslu.