Varað við stormi á Norðurlandi í kvöld
Von er á hvassviðri og stormi á Norðurlandi í kvöld og nótt. Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Norðurland eystra frá kl. 21 í kvöld og appelsínugula viðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra frá kl. 22.
Lögreglan á Norðurlandi eystra hvetur íbúa til að huga að lausamunum og fylgjast vel með þróun veðursins með tilliti til aðstæðna á hverju svæði. Von er á versta veðrinu á Tröllaskaga og vestanvert við Eyjafjörðinn. Möguleiki er á einhverri hríð með þessu hvassviðri.
Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur einnig ítrekað tilmæli þess efnis að fólk ætti ekki að vera á ferðinni í kvöld og nótt á meðan veðrið gengur yfir og bent á að Veðurstofan hafi lýst yfir sérstökum áhyggjum vegna veðursins í Skagafirði.
Viðvörun fyrir Norðurland eystra: Sunnan hvassviðri eða stormur, 15-23 metrar á sekúndu, hvassast vestantil á svæðinu þar sem vindhviður geta farið yfir 35 m/sek. Fólk er hvatt til að huga að lausamunum. Varasamt ferðaveður.