Fara í efni
Menning

Vala Fannell leikur Gvend í Skugga-Sveini

Leikhópur Skugga Sveins hefur fengið liðsauka með komu leikkonunnar Völu Fannell. Vala hefur komið víða við og leikstýrði núna síðast fjölskyldusöngleiknum um Benedikt búálf sem sló í gegn í Samkomuhúsinu. Þetta kemur fram á vef Menningarfélags Akureyrar, MAk.

„Auk Völu leika þau Björgvin Franz Gíslason, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Sunna Borg, María Pálsdóttir, Árni Beinteinn og Vilhjálmur B Bragason í verkinu ásamt sjálfum Jón Gnarr sem leikur titilhlutverkið. Vala leikur Gvend.

Leikfélag Akureyrar frumsýnir Skugga Svein í janúar 2022. Leikstjóri er Marta Nordal.“

Ný og fersk útgáfa

„Skugga Sveinn, hér í nýrri og ferskri útgáfu, er bráðskemmtilegt verk um einn þekktasta útlaga Íslands og baráttu hans við laganna verði,“ segir á vef MAk.

„Lárensíus sýslumaður á þann draum heitastan að klófesta útilegumanninn Skugga Svein og lið hans enda Skugga Sveinn stórglæpamaður, þjófur og morðingi. En heldur vandast málið þegar dóttir Lárensíusar verður ástfangin af einum útilegumannanna og gerir hvað hún getur til að frelsa hann frá fangelsun og dauða. Hefst þá spennandi atburðarrás og barátta á milli ástar og haturs, réttlætis og ranglætis.

Skugga Sveinn eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson var eitt þekktasta og vinsælasta leikverk á Íslandi um áratuga skeið og litríkar persónur þess, Grasa Gudda, Gvendur smali og Ketill skrækur hafa lifað með þjóðinni og tekið sér bólfestu í hjarta hennar.“