Útgáfuhóf Pastel í Sigurhæðum á morgun

Útgáfuhóf verður haldið í Sigurhæðum á morgun, fimmtudag, þar sem tvö ný rit bætast við Pastel ritröð. Það eru listamennirnir Boaz Yosef Friedman og Ester Hilmarsdóttir sem gefa út rit númer 39 og 40. Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir flytur nokkur lög í útgáfuhófinu sem hefst kl. 17 og öll velkomin.
Verk Boaz heitir Born in a Burning house og samanstendur af teikningum, prósum og ljóðum. Boaz er myndlistamaður og starfar út frá Reykjavík. Verk nr 40 í Pastel ber titilinn Gjaldfelld og er eftir Ester Hilmarsdóttur rithöfund með meiru í Aðaldal í Þingeyjarsýslu, segir í fréttatilkynningu frá Flóru menningarhúsi, sem gefur út ritin. Rit Esterar inniheldur skörp ljóð og fínlegar teikningar. Verkin í Pastel ritröð eru gefin út í 100 árituðum og númeruðum eintökum og hægt er að nálgast þau í Sigurhæðum, verslun Listasafnsins (á jarðhæðinni) og á www.pastel.is.
Pastelrit númer 39 og 40. Mynd: Daníel Starrason.
Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir flytur nokkur lög í útgáfuhófinu. Grafíska hönnun og uppsetningu fyrir prent ritanna gerir Cave Canem hönnunarstofa á Akureyri og Prentsmiðjan á Akureyri hefur umsjón með prentun. Útgefandi er Flóra menningarhús á Akureyri.
Menningarverkefnið Pastel ritröð hófst árið 2017 og er styrkt af Uppbyggingarsjóði Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra, Menningarsjóði Akureyrar og Útgáfufélaginu. Pastel hefur á undanförnum árum gefið út 40 frumsamin verk eftir 41 listamann og staðið fyrir tæplega 100 viðburðum víða um land.