Fara í efni
Fréttir

Upplýsingabæklingur fyrir eldri íbúa

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Akureyrarbær hefur gefið út nýjan upplýsingabækling fyrir eldri íbúa undir heitinu Lífsgæði á efri árum – þjónusta og tækifæri. Markmiðið er að auðvelda eldri Akureyringum og aðstandendum þeirra að finna hagnýtar og áreiðanlegar upplýsingar um þá þjónustu og þau úrræði sem í boði eru.

Í bæklingnum er meðal annars fjallað um félagsmiðstöðvarnar Birtu og Sölku, stuðningsþjónustu, heimahjúkrun og verkefnið Virk efri ár. Einnig eru þar upplýsingar um menningarstarf, hreyfingu, samgöngur, afslætti fyrir eldri borgara og ýmis önnur tækifæri sem standa eldri Akureyringum til boða

Bæklingurinn er bæði gefinn út á prenti og í rafrænni útgáfu. Hann er unninn í samstarfi starfsfólks Akureyrarbæjar, fulltrúa EBAK og annarra sem koma að málefnum eldra fólks.

Útprentað eintak má nálgast í þjónustuveri Akureyrarbæjar í Ráðhúsi og við Glerárgötu 26, á skrifstofu EBAK og í félagsmiðstöðvunum Birtu og Sölku og rafræna útgáfu bæklingsins má sjá á þessari síðu.