Fara í efni
Menning

Undiralda Örnu og bátar Hallgríms á Siglufirði

Strandmenningarhátíðin Auður hafs og stranda hefst á Siglufirði í dag, fimmtudag, á vegum Vitafélagsins – íslensk strandmenning, í samstarfi við fjölmarga aðila á Siglufirði, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki sem mætir með 30 smíðanema, listamenn og fleiri. Á hátíðinni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem dregur fram fjölbreyttan og ríkan menningararf íslenskra sjávarbyggða og tengsl þjóðarinnar við hafið, eins og segir í tilkynningu.

Hátíðin verður sett í Bátahúsinu kl. 17 en kl. 14 verða opnaðar vinnustofur, handverks- og myndlistarsýningar. Tveir akureyrskir listamenn sýna í húsnæði brugghússins Seguls; Hallgrímur Stefán Ingólfsson opnar myndlistarsýninguna Bátarnir hans Hallgríms og þar verður einnig sýnt videóverk Örnu Valsdóttur, Undiralda, sem hún vann á Siglufirði árið 2024.

Myndlistarsýning Hallgríms Stefáns Ingólfssonar – Bátarnir hans Hallgríms – er hluti strandmenningarhátíðarinnar á Siglufirði. Þessi mynd var á sýningu sem Hallgrímur kallaði Bryggjurúntur, í sal verslunarinnar Epal á Laugavegi í Reykjavík í fyrra.

Fræðsla, listir, samvera

Á þrem dögum verður handverki og hefðum við smíði súðbyrtra báta gert hátt undir höfði, en það var tekið á lista UNESCO árið 2021 og er eini samnorræni menningararfurinn sem þar er að finna – sjá hér.

Einnig gefst gestum kostur á að sækja handverkssýningar, tónlistarviðburði, kvikmyndasýningar, matarnámskeið, myndlistarsýningar, fara í siglingu, öðlast grunnþekkingu í bátasmíði og hlusta á ljóðlist og þjóðlagatónlist og njóta menningardagskrár þar sem saga, sjómennska, handverk, náttúra og menningararfur fléttast saman. „Siglufjörður, með sína einstöku sögu sem einn helsti sjávarútvegs- og síldarbær landsins, er kjörinn vettvangur fyrir hátíð sem þessa,“ segir í tilkynningu frá Vitafélaginu.

„Markmið hátíðarinnar er að vekja athygli á bátasmíði og öðrum auðæfum íslenskrar strandmenningar, efla þekkingu á sögu og menningarerfðum sjávarplássa og benda á hvernig hægt er að nýta söguna til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar. Einnig til að skapa vettvang þar sem íbúar og gestir geta notið fræðslu, lista og samveru og eflt tengsl í fallegu umhverfi Siglufjarðar.“

Hátíðin er opin öllum og dagskráin höfðar jafnt til fjölskyldna, áhugafólks um sögu og menningu, sjómennsku, náttúru og ferðalaga sem og þeirra sem vilja njóta líflegs menningarviðburðar í einni fallegustu sjávarbyggð landsins.

„Aðgangur er ókeypis á flesta viðburði hátíðarinnar en frjáls framlög eru vel þegin,“ segir í tilkynningu Vitafélagsins.