Fréttir
Umfangsmikil leit að einstaklingi
22.07.2026 kl. 21:45
Félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, við leit í kvöld. Myndin er tekin i Þingvallastræti. Mynd: Haraldur Ingólfsson
Umfangsmikil leit að einstaklingi stendur yfir í Lunda- og Gerðahverfi á Akureyri. RÚV greindi fyrst frá og herma heimildir fréttastofunnar að stúlku undir lögaldri sé leitað. Fram kemur að allar björgunarsveitir á Eyjafjarðarsvæðinu hafi verið kallaðar út til að aðstoða lögreglu við leitina.
Vísir segir að ekki sé talið að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. Í frétt Vísis segir að lögreglu hafi borist tilkynning um týndan einstakling fyrr í dag „og leit hafi þegar staðið yfir í nokkrar klukkustundir. Leitin beinist aðallega að svæði sunnan Glerár en leitað sé á allri Akureyri.“