Fara í efni
Fréttir

Um 100 grindhvalir skammt frá Krossanesi

Myndir: Þorgeir Baldursson

Fjöldi fólks sigldi með hvalaskoðunarbátum um Eyjafjörð í morgun og ekki þurfti að fara langt til að ferðamennirnir fengju mikið fyrir peninginn! Skammt undan bryggjunni í Krossanesi var stór grindhvalavaða, um 100 dýr skv. lauslegri talningu skipverja. Tveir bátar voru á svæðinu, bæði Hólmasól og Diplomat. Þá fréttist af 50 til 60 hnúfubökum norðan við Ólafsfjarðarmúla í morgun þannig að mikið líf virðist í firðinum.