Fara í efni
Mannlíf

Tvö söfn í fallegu, áberandi húsi

Arnór Bliki Hallmundsson fjallar í nýjum pistli í röðinni Hús dagsins um Aðalstræti 46 – Friðbjarnarhús. „Það þarf vart að fjölyrða um það, hvað Friðbjarnarhús, sem er í sérlega góðri hirðu, er til mikillar prýði í umhverfinu en það stendur líka skemmtilega, nokkuð hátt á barðbrún götunnar og er sérlega áberandi,“ segir í pistlinum.

Reykvíski járnsmiðurinn Ingimundur Eiríksson byggði húsið fyrir nærri 180 árum en það er jafnan kennt við Friðbjörn Steinsson, bóksala og bókbindara, sem flutti í húsið ásamt foreldrum sínum um miðja 19. öldina og bjó þar til dauðadags árið 1918. Hann var mjög ötull við ýmis embættis- og félagsstörf en það sem etv. hefur haldið nafni Friðbjarnar Steinssonar á lofti framar öðru er að  í húsinu var stofnuð fyrsta stúkan á Íslandi, ísafold nr. 1, 10. janúar árið 1884, 

Góðtemplarar keyptu húsið 1961 en færðu bænum það að gjöf á fyrsta áratug þessar aldar. Húsið hefur verið í umsjá Minjasafnsins á Akureyri síðan. Á efri hæðinni hefur minjasafn Góðtemplara verið allar götur síðan 1961 og frá 2010 hefur leikfangasafn Guðbjargar Ringsted verið á neðri hæðinni. 

Pistill dagsins: Aðalstræti 46; Friðbjarnarhús