Fara í efni
Fréttir

Tveir létust í slysinu á Eyjafjarðarbraut

Tveir létust í umferðarslysi sem varð í dag á Eyjafjarðarbraut eystri, skammt norðan við Laugaland. Greint er frá því á Facebook síðu lögreglunnar að um banaslys hafi verið að ræða.

Á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir:
 
Alvarlegt umferðarslys varð á Eyjafjarðabraut eystri, skammt norðan við Laugaland skömmu eftir kl. 13:00 í dag. Þarna hafði bíll lent út af og voru tveir aðilar sem í honum voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Lögreglan á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og er hún á frumstigi og ekki frekari upplýsingar að hafa að sinni.