Fara í efni
Fréttir

Tveir harðir árekstrar urðu í morgun

Bílarnir tveir sem rákust saman við leikskólann Álfastein lentu báðir utan vegar. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson

Harður árekstur varð á mótum Glerárgötu og Strandgötu á Akureyri á tíunda tímanum í morgun og annar á svipuðum tíma við leikskólann Álfastein í Hörgársveit, spölkorni norðan Akureyrar.

Tveir jeppar rákust saman á horni Glerárgötu og Strandgötu við Hof og tveir fólksbílar rákust svo saman við Álfastein. Allir fjórir bílarnir skemmdust mikið.

Akureyri.net hefur ekki upplýsingar um það hvort fólk slasaðist í óhöppunum.

Frá slysstað á horni Glerárgötu og Strandgötu. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson