Fara í efni
Menning

Tvær sýningar opnaðar í Listasafninu í dag

Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri í dag klukkan 15.00. Annars vegar sýning Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson, Vísitasíur, hins vegar sýning Ann Noël, Teikn og tákn.

Æsa Sigurjónsdóttir, sýningarstjóri, stýrir listamannaspjall við Bryndísi og Mark klukkan 16.00 í dag og á morgun, sunnudag, klukkan 15.00 verður haldið málþing í Listasafninu um Ann Noël og Fluxus-hreyfinguna.

„Sýningin Vísitasíur er hluti af listrannsóknarverkefninu Ísbirnir á villigötum, sem unnið er í samstarfi sérfræðinga á sviði myndlistar, þjóðfræði og náttúru- og umhverfisfræði. Markmið verkefnisins er að auka þekkingu á fjölþættum tengslum dýra, manna og umhverfis á tímum loftslagshlýnunar. Áhersla er lögð á að rannsaka birtingarform hvítabjarna á Íslandi í sögulegu og samtímalegu samhengi,“ segir í tilkynningu frá Listasafninu.

„Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson vinna saman að þverfaglegum myndlistarverkefnum í listasöfnum víða um heim. Þau vinna jafnt með sérfræðingum sem leikmönnum og í verkum sínum skoða þau birtingarform dýra í samfélagslegu, menningarlegu og umhverfislegu samhengi. Verk þeirra afhjúpa menningartákn, sýna fram á hefðir og viðbrögð manna gagnvart dýrum, um leið og þau varpa ljósi á spurningar um náttúruvernd og ólíka afstöðu manna til útrýmingarhættu innan lífríkisins í vistfræðilegu samhengi.

Listrannsóknaverkefnið hefur ótvírætt gildi fyrir uppbygginu rannsóknarumhverfis í listum hér á landi og markar því ákveðin tímamót. Það felur jafnframt í sér þverfaglegt samstarf milli Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands, sem er til þess fallið að opna nýjar leiðir fyrir rannsóknarsamstarf á tímum sem kalla á endurskoðun leiða til þekkingarsköpunar innan fræðasamfélagsins. Verkefnið er stutt af Rannsóknasjóði Rannís og Myndlistarsjóði. Það er hýst hjá Listaháskóla Íslands, þar sem Bryndís gegnir starfi prófessors og fagstjóra meistaranáms myndlistardeildar. Verkefnið er unnið í samvinnu við Anchorage safnið í Alaska og Gerðarsafn í Kópavogi.“

Sýningarstjóri er Æsa Sigurjónsdóttir, dósent í listfræði við Háskóla Íslands.

Nánar hér um verkefnið Ísbirnir á villigötum.

Ann Noël er fædd á Englandi 1944, en hefur verið búsett í Berlín frá 1980. Bakgrunnur hennar er í grafískri hönnun, prenti, ljósmyndun, málun og gjörningum.

„Eftir útskrift úr grafískri hönnun 1968, frá Bathlistaakademíunni í Corsham, vann Noël með Hansjörg Mayer í Stuttgart, en hann var einn af fyrstu útgefendum bókverka. Þessi reynsla kom sér vel þegar henni bauðst að vinna sem aðstoðarmaður Dick Higgins, útgefanda hjá The Something Else Press í New York. Þar kynntist hún Emmett Williams (1925-2007), ritstjóra forlagsins og fjölmörgum Fluxus listamönnum. Snemma á níunda áratugnum varð Noël virkur meðlimur í Fluxus hreyfingunni og tók þátt í gjörningahátíðum víða um heim, einkum í samvinnu við eiginmann sinn Emmett Williams. Hún fremur ennþá gjörninga innan Fluxus Art Group. Einnig hefur hún sjálf gefið út mörg af sínum eigin bókverkum í gegnum árin.“  Sýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.

Sýningarnar standa báðar til 16. janúar 2022. Listasafnið á Akureyri er opið alla daga kl. 12.00 til 17.00.

Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson.

Ann Noël.