Ester Ósk Árnadóttir hefur, ásamt bróður sínum Birgi Frey Árnasyni, unnið að skemmtilegu verkefni frá því í vor og núna fyrir nokkrum dögum má segja að uppskeran hafi litið dagsins ljós. Þau tóku þátt í Slipptökunni hjá Drift EA í vor, fóru þar inn með einfalda hugmynd sem síðan þróaðist áfram og varð að Trítu, vef sem ætlað er að tengja gæludýraeigendur og dýravini með þjónustu í huga.
Nú þegar hafa um 50 manns skráð sig á Trítu og þar af eru átta skráðir sem dýravinir sem bjóða þjónustu í gegnum vefinn. Þjónustan nær í raun yfir allt landið því notendur geta séð hvar viðkomandi dýravinur er staðsettur. „Til þess að Tríta nýtist vel þarf að vera virkt samfélag bæði dýraeigenda og dýravina á hverju svæði. Það væri mjög gaman að sjá fleiri skrá sig hér fyrir norðan bæði á Akureyri og annars staðar á Norðurlandi,“ segir Ester.

Um hugmyndina og þróun verkefnisins segir meðal annars á vefsíðunni að upphaflega hafi markmiðið verið að hjálpa dýraeigendum að finna einstaklinga sem bjóða þjónustu fyrir gæludýr. Í þróunarferlinu hafi þau hins vegar séð tækifæri til að gera meira og hafi þá bætt við þeim möguleika að dýraeigendur geti einnig auglýst eftir þjónustu og heyrt frá dýravinum sem hafa áhuga á verkefninu.
„Hugmyndin er að gera það auðveldara að finna trausta þjónustu fyrir gæludýr og á sama tíma gefa einstaklingum tækifæri til að byggja upp orðspor og tekjur í kringum það að sinna dýrum. Í dag þjónar Tríta hundum, köttum, fuglum og smádýrum en vefurinn er í stöðugri þróun og fullt af hugmyndum eru þegar komnar á teikniborðið.“

„Ég hef sjálf verið með hunda í kringum mig allt mitt líf og veit hversu flókið það getur verið að finna einhvern sem býður upp á svona þjónustu. Yfirleitt þarf maður að reiða sig á fjölskyldu eða vini,“ segir Ester sem hér er úti á röltinu með Blæ og Kleó. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Ganga, rölta, snúast
Heitið á vefnum, Tríta, er bein þýðing á enska hugtakinu „treat“, sem getur til dæmis merkt að dekra við, en einnig kemur fram á vefnum að á 17. öld hafi það að tríta merkt að ganga, rölta og snúast. Því hafi nafnið þótt tilvalið á þetta verkefni.
„Hugmyndin kviknaði fyrst og fremst út frá því að mér fannst vanta einn stað þar sem dýraeigendur gætu fundið fólk til að sinna dýrunum sínum og dýravinir gætu boðið þjónustu sína. Ég hef sjálf verið með hunda í kringum mig allt mitt líf og veit hversu flókið það getur verið að finna einhvern sem býður upp á svona þjónustu. Yfirleitt þarf maður að reiða sig á fjölskyldu eða vini,“ segir Ester.
Oft getur verið erfitt fyrir gæludýraeigendur að finna réttu manneskjuna til að hjálpa við að sinna gæludýrinu. „Við vildum búa til einfaldan og öruggan stað þar sem dýraeigendur geta fundið dýravini í sínu nærumhverfi, skoðað þjónustu og sent inn beiðni þegar þeir þurfa aðstoð,“ segir meðal annars á vefsíðunni.
Systkinin Ester Ósk Árnadóttir og Birgir Freyr Árnason kynna verkefnið hjá Drift EA. Þau tóku þátt í Slipptökunni í vor og þróuðu verkefnið sem nú er komið af stað á vefnum trita.is. Aðsend mynd.
Fjölbreyttir þjónustumöguleikar
Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar þjónustu við gæludýraeigendur ber á góma er líklega að fara út að ganga með hundinn fyrir hundaeigendur sem ef til vill geta það ekki af einhverjum ástæðum. En þjónustan beinist að fleiri þáttum, til dæmis geta dýravinir tekið að sér að heimsækja og aðstoða við umsjón með hundum, köttum, smádýrum og fuglum, tekið gæludýr í pössun ef eigendur bregða sér burt í lengri eða skemmri tíma, jafnvel tekið að sér pössun á heimili gæludýrsins ef svo ber undir. Dýraeigendur geta einnig sent inn beiðni um ákveðna þjónustu ef þeir finna ekki það sem þeir leita að og dýravinir geta þá haft samband.
Skjáskot af trita.is.
Tríta er einfaldlega vettvangur sem tengir saman dýraeigendur og dýravini sem hafa áhuga á að þjónusta þá fyrrnefndu. Á vefnum geta dýraeigendur leitað að þjónustu, sent inn beiðnir og bókað dýravin. Dýravinir geta jafnframt skráð sig inn á vefinn, búið til prófíl og boðið fram þjónustu sína. „Markmiðið er að gera ferlið einfalt, skýrt og öruggt fyrir báða aðila,“ segir meðal annars á vefnum.
Skráning án skuldbindingar
Fram kemur í tilkynningu Trítu að dýraeigendur og dýravinir geti skráð sig á vefinn án skuldbindingar. Dýravinir ráða sjálfir hvaða þjónustu þeir bjóða, verðinu sem þeir bjóða og hvenær þeir eru lausir. Þeir geta ákveðið hversu mikið þeir vilja taka að sér, hvort sem það er einn og einn göngutúr eða regluleg þjónusta og stillt framboð eftir því sem hentar. Dýraeigendur geta leitað að þjónustu sem hentar þeim eða sent inn beiðni um þá þjónustu sem þeir þurfa.
Skjáskot af trita.is.
Tríta er nú þegar opin fyrir skráningar dýraeigenda og dýravina á
trita.is og að auki hægt að fylgjast með Trítu á
Facebook og
Instagram.
Öll samskipti, bókun og greiðsla fyrir þjónustuna fara í gegnum vefkerfið hjá Trítu og er sérstaklega tekið fram að öll þjónusta sem fer í gegnum vefinn falli undir tryggingu sem fyrirtækið hefur hjá Verði. Mikil áhersla hafi verið lögð á öryggi í kringum bókanir við þróun Trítu. Að þjónustu lokinni geta notendur gefið viðkomandi dýravini umsögn, sem aðrir kaupendur sjá þegar þeir leita eftir þjónustu.
„Öryggi var eitt af því sem var hugsað mikið um við þróun Trítu og tryggingin er mikilvægur hluti af því. Okkur fannst skipta máli að það væri meira á bak við bókunina en bara samkomulag milli tveggja aðila,“ segir Ester Ósk Árnadóttir, dýravinur og eigandi Trítu.