Transheilunarstund við Brunnárfoss
Óvenjulegur viðburður verður við Brunnárfoss í Kjarnaskógi í kvöld, miðvikudagskvöld, þegar boðið verður upp á transheilunarstund undir berum himni. Viðburðurinn hefst klukkan 20:30 og er aðgangur ókeypis.
Að viðburðinum standa þær Hulda Ólafsdóttir, Hilda Hólm Árnadóttir og Harpa Dowan Howee. Þær segja markmiðið vera að skapa rólega stund í náttúrunni þar sem þátttakendur geti leitað inn á við og tekið þátt í andlegri heilunarstund. „Í kyrrð og krafti náttúrunnar munum við opna fyrir transheilun og bjóða englum, Gaiu, jarðarverum og öðrum yndislegum ljósverum að stíga inn í stundina,“ segja þær. „Við komum saman til að þiggja heilun, en jafnframt til að sameina kraft okkar og senda heilun til jarðarinnar.“ Vatnið, fossinn og náttúran í kring verði jafnframt hluti af stundinni.
Stundin fer fram utandyra og þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér teppi og rafmagnskerti til að skapa notalega stemningu við fossinn. Einnig er bent á að klæða sig eftir veðri. Hægt er að leggja bílum við Hamra og þaðan er nokkur ganga að Brunnárfossi.
Fjölbreyttur bakgrunnur í andlegum málefnum
Skipuleggjendurnir þrír hafa allir fengist við ólík verkefni á sviði andlegra fræða og heilunar.
Hilda Hólm Árnadóttir hefur um árabil lagt stund á andleg málefni og meðal annars sótt nám og þjálfun í miðlun, transmiðlun og heilun við Arthur Findlay College í Englandi. Hún hefur einnig lokið ýmsum námskeiðum og þjálfun á sviði orku- og andlegrar vinnu.
Hulda Ólafsdóttir er meðal annars klínískur dáleiðandi og markþjálfi og starfar við hugræna endurforritun og dáleiðslu. Hún hefur einnig sótt fjölbreytt andleg námskeið hérlendis og erlendis.
Harpa Dowan Howee er hljóðheilari og eigandi Líkama Sálar. Hún er fædd á Akureyri og hefur meðal annars starfað á vettvangi Sálarrannsóknafélags Akureyrar. Hún er vottaður Gong Master og hefur alþjóðlega vottun í hljóðheilun.
Viðburðurinn er á íslensku en aðstandendur segja að ekki sé nauðsynlegt að skilja allt sem þar fer fram. Þeir sem mæta geti einfaldlega notið stundarinnar og náttúrunnar.