Toppar Pálínu sýndir í Mjólkurbúðinni
Pálína Guðmundsdóttir opnar myndlistarsýninguna Toppar í dag í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri. Uppistaða málverkanna eru fjallatindar og oft samruni himinsins og hafsins, að því er segir í tilkynningu. Verkin eru flest máluð 2026. „Orðið toppar er þar oftast notað frekar en tindar, þar sem tindar vísar meira eingöngu í jarðfræði en toppar nær yfir mun víðara svið sem ekki er síður mikilvægt.“
Sýningin hefst kl. 17.00 í dag og lýkur sunnudaginn 5. júlí. Hún verður opin til kl. 19.00 í dag og síðan daglega frá kl. 14.00 til 17.00.
„Fjallatindar geta verið tákn einhvers fjarlægs sem erfitt er að nálgast og klífa, og jafnvel huglæg birtingamynd erfiðra verkefna. Þeir geta jafnframt verið andstaða þess og tjáð velgengni og það að vera á toppnum eða á tindi frama eða velgengni,“ segir í tilkynningu um sýninguna.
„Fjallatindar eru þeir punktar jarðarinnar sem lengst skaga uppúr jarðskorpunni og virðast því næst himninum, umvafðir dularfullum ævintýrabjarma. Þeir minna hugsanlega á það sem er handan jarðlífsins og hugrenningar um að öllu er afmörkuð stund, og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma, eins og við erum reglulega minnt á. Flest er breytingum háð, s.s. veðrið og vindarnir sem sverfa og eyða fjallatindunum, en það sem ekki breytist er blár litur himinsins og hafsins. Pólstjarnan er líka eini fasti punktur sæfaranna, sem byggja sína vegvísa á stöðu þessa einstaka ljósgjafa himinsins á ferðum sínum um hafið.“
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir er fædd og starfandi á Akureyri. Hún nam myndlist og málvísindi í Gautaborg og hélt svo til frekara náms í myndlist 1982 til AKI í Enschede í Hollandi og framhaldsnám í Jan van Eyck Akademie í Maastricht (1987-89). Hún hefur verið starfandi myndlistamaður síðan 1989 og sýnt reglulega síðan. Í lok árs 2022 gaf hún út bókina Andlit/Faces sem fæst í öllum safnabúðum listasafna landsins og í Eymundsson á Akureyri.
Heimasíða listakonunnar er palina.is og Instagram síðan palina.gudmundsdottir.art