Tónlistarskólinn 80 ára – hátíð í Hofi í dag
Tónlistarskólinn á Akureyri fagnar 80 ára afmæli í ár, en til þess að hefja afmælisfögnuðinn verður boðið til hátíðar í dag í Menningarhúsinu Hofi, þar sem skólinn er til húsa. Formleg setning verður á milli 12 og 13, þar sem í boði verður kaka, ræðuhöld og auðvitað tónlist!
Dagurinn hefst þó á smiðjum þar sem gestir fá að taka virkan þátt, á milli 11 og 12. Einnig verður hægt að ganga um skólarýmið og skoða, fá sér kaffi og spjalla við kennara og starfsfólk.
Dagskráin eins og hún er sett fram á heimasíðu Tónak:
Kl. 11:00 Electrosmiðja - stofa 357, 3. hæð
Lítið við í stofu 357! skoðum allskonar græjur, snúum tökkum og búum til skrítin hljóð saman!
Kl. 11:00 Lita & hlusta - bókasafn, 3. hæð
Þátttakendur hlusta á klassískt tónverk ca. 25 min. langt hljómsveitarverk - mögulega konsert og lita mynd eða teikna undir áhrifum tónlistarinnar. Hægt að teikna/lita eftir eigin höfði eða lita t.d. fyrirliggjandi myndir.
ATH! takmarkað pláss, mætið tímanlega.
Kl. 11:00 Söngdansar - Dynheimum, 2. hæð
Söngdansar er fyrir þau sem finnst gaman að syngja og dansa lög á borð við Foli foli fótalipri, Á Sprengisandi, Fiðrildadans frá Bólivíu og fleira.
Kl. 11:00 Trommuhringur - Black box, jarðhæð
Trommuhringur er hefð sem tengist alheimstónlist og byggir á leik með rytma og almennri þátttöku. Helsti kostur er að allir geta tekið þátt og notið þrátt fyrir ólíka getu. Trommuhringir byggja á að fólk komi saman og spili.
Kl. 11:30 Fiðlukynning - Lundi, 2. hæð
Fiðlan er skoðuð með eyrum, fingrum og augum. Hentar börnum frá eins árs aldri og upp úr.
Kl. 11:30 Söngsalur - Hömrum, jarðhæð
Fjöldasöngur, við komum saman og syngjum, söngtextar á skjá
SETNING 12:15 -12:45
Ræður frá nemendum, Ronja Sif talar fyrir hönd klassískrar deildar og Eden Blær fyrir hönd rytmískrar deildar.
Suzuki kríli og suzuki fiðlur, barna og unglingasöndeild og flautusamspil sjá um skemmtiatriði á setningu og boðið verður upp á köku.
Frá 13-15 verða stuttir tónleikar í þrem mismunandi rýmum:
- 13:00 - Nausti Blásarasveitir
- 13:20 - Hömrum Klassísk söngdeild
- 13:40 - Black box Rytmískar hljómsveiti
- 14:00 - Nausti Strengjasveitir og víólu og sellóhópur
- 14:20 - Hömrum Píanó og gítardeildir
- 14:40 - Black box Rytmísk söngdeild
Ókeypis er á alla dagskrárliði og öll velkomin, segir í frétt á vef Tónlistarskólans um hátíðina.