Menning
Tónleikasýning Skoppu og Skrítlu í Hofi
18.11.2026 kl. 16:30
Hinar vinsælu Skoppa og Skrítla setja upp tónleikasýninguna Jólapartý Skoppu og Skrítlu í menningarhúsinu Hofi snemma í desember. Jólapartýið var sýnt í Borgarleikhúsinu á síðasta ári og sýningin sló í gegn að því er segir í tilkynningu; uppselt var á allar sýningar og áhorfendur voru ríflega 10 þúsund. Þær sýna aftur í Hörpu í ár bæta við fjórum sýningum í Hof og segjast einstaklega glaðar að geta vonandi hitti marga vini og vinkonur á landsbyggðinni.
„Við erum um 100 talsins á sviðinu. Fjórir leikarar, tvær poppstjörnur, 17 dansandi og syngjandi börn og á Akureyri bætist við Blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri og nemendur í barna og unglingasöngdeild Tónak. Heldur betur spennandi að hafa tækifæri til að tengjast frábærum og hæfileikaríkum börnum á Akureyri,“ segir í tilkynningu frá Skoppu og Skrítlu – leikkonunum Lindu Ásgeirsdóttur og Hrefnu Hallgrímsdóttur.
Fyrsta sýningin í Hofi verður föstudaginn 3. desember og daginn eftir verða þrjár sýningar. „Það mun full rúta af leikurum og dönsurum ásamt stórum flutningabíl með leikmynd og búninga leggja af stað frá Reykjavík þann 3. desember,“ segir í tilkynningunni. „Unnið verður hratt að því að sviðsetja sýninguna og blásið verður til fyrstu sýningar strax á föstudeginum 4. desember kl 17 og svo verða þrjár sýningar laugardaginn 5. desember kl. 11, 13 og 15. Sýningin er fyrir alla fjölskylduna frá 1 árs uppí 101 árs. Líf og fjör og jólin beint í hjartað.“
Með helstu hlutverk fara Linda Ásgeirsdóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Viktor Már Bjarnason, Páll Óskar Hjálmtýsson og Salka Sól „ásamt 12 syngjandi og dansandi glöðum börnum.“
