Tíu krakkar valdir í Skilaboðaskjóðuna
Af um 120 krökkum sem freistuðu þess að fá hlutverk í Skilaboðaskjóðunni, sem sett verður upp hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur, hafa nú verið valdir tíu ungir leikarar sem fá hlutverk í sýningunni. Æfingar hefjast í nóvember.
Auglýst var eftir ungum leikurum á aldrinum 9-18 ára til að fara með ýmis hlutverk, meðal annars leitað að sjálfum Putta litla, einni af aðalpersónum sögunnar, en einnig öðrum persónum og kynjaverum úr Ævintýraskóginum. Mikill áhugi var á þessu spennandi verkefni og sóttust um 120 krakkar eftir því að komast að. Prufur fóru fram í upphafi mánaðarins.
Þau sem fengu hlutverk eru Agnes Emma Guanci, Benóný Þór Jónsson, Brynja Hlín Björgvinsdóttir Ester Jóna Bryndísardóttir, Heiðbrá Hekla Sigurgeirsdóttir, Margrét Lára Rúnarsdóttir, María Rut Norðfjörð, Ólafur Árni Haraldsson, Ólöf Birna Kristjánsdóttir og Rakel Heiða Björnsdóttir.
Bergur Þór Ingólfsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, leikstýrir verkinu og þar með einnig áðurnefndum tíu ungu leikaraefnum. „Fram undan eru því spennandi mánuðir hjá hópnum þar sem þau hefja undirbúning fyrir uppsetninguna og stíga saman fyrstu skrefin inn í heim Skilaboðaskjóðunnar,“ segir í tilkynningu Menningarfélags Akureyrar.