TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN, SJÓMENN!
Upp er runninn sunnudagurinn 7. júní – sjómannadagurinn. Hátíð var af því tilefni haldin í Sandgerðisbót í gær og margir lögðu leið sína þangað; aðstendur hátíðarinnar telja að um 2.000 manns hafi komið á svæðið. Verbúðir stóðu gestum opnar, fólki gafst kostur á að smakka alls kyns sjávarfang auk þess sem grillaðar voru pylsur og boðnir svalandi drykkir sem komu sér vel í góða veðrinu.
Meðfylgjandi myndir voru tekar í Bótinni í gær. Dagskráin heldur áfram í dag, í Akureyrarkirkju, á Pollinum og á Höepfnerssvæðinu.

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Mynd: Þorgeir Baldursson
Sunnudagur 7. júní – Sjómannadagurinn
08:00 – Fánadagur
- Bæjarbúar draga fána að hún
11:00 – Sjómannadagsguðsþjónusta
- Messa í Akureyrarkirkju
- Sjómenn heiðraðir
13:00 og 14:15 – Hópsigling smábáta og Húna II
- Húni siglir með bæjarbúa og hópsigling smábáta
- Öll velkomin
16:00 – Höepfnerssvæðið - minnisvarði afhjúpaður
- Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn afhjúpaður

Mynd: Skapti Hallgrímsson
GRÍMSEY
Kvenfélagið Baugur heldur kaffihlaðborð í félagsheimilinu Múla á sunnudeginum.
- 10:00 Sigling
- 11:11 Sjómannadagsmessa í Hríseyjarkirkju
- 12:00 Ferjumenn grilla pylsur á svæðinu, tæki björgunarsveitar og slökkviliðs til sýnis. Leikir og sprell á svæðinu
- 15:00 Kaffisala kvenfélagsins í Íþróttamiðstöðinni
- 16:00 Sigling fyrir börnin á björgunarbátnum Kidda

Mynd: Þorgeir Baldursson