TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN, SJÓMENN!

Upp er runninn sunnudagurinn 1. júní – sjómannadagurinn. Hátíð var af því tilefni haldin í Sandgerðisbót í gær þar sem dyr verbúða stóðu öllum opnar; fjölmargir lögðu leið sína í Bótina, fólki gafst kostur á að smakka alls kyns sjávarfang auk þess sem grillaðar voru hátt í þúsund pylsur. Karlakór Akureyrar söng fyrir viðstadda og margir skoðuðu smábáta í höfninni. – Myndir úr Bótinni má sjá hér að neðan.
Síðdegis var minningarsigling með Húna lI um Pollinn; látinna sjómanna var minnst með því að blóm voru lögð í sjóinn að lokinni minningarstund séra Magnúsar Gunnarssonar.
Eitt og annað er á döfinni í dag á Akureyri í tilefni dagsins.
11.00 – Sjómannadagsguðþjónusta
- Messa í Glerárkirkju.
- Að athöfn lokinni verður blómsveigur frá sjómönnum lagður að minnismerki látinna sjómanna. Súpa í Safnaðarheimili í boði sjómannafélags Eyjafjarðar eftir athöfn.
13.00 – Afmælissýning ÚA
- Sýning opnuð í Iðnaðarsafninu á Akureyri í tilefni 80 ára afmælis Útgerðarfélags Akureyringa. Á sýningunni er saga og starfsemi félagsins rakin í máli, munum og myndum.
- Húsnæði Iðnaðarsafnsins er á Krókeyri. Frítt er inn á sýninguna þennan dag.
13.00 – Hópsigling smábáta og Húna II
- Húni siglir með bæjarbúa og hópsigling smábáta.
- Öll velkomin.
- Farið verður í fleiri ferðir ef aðsóknin verður góð.
GRÍMSEY
Kvenfélagið Baugur heldur kaffihlaðborð í félagsheimilinu Múla í dag, sunnudag.
- 10.00 Sigling
- 11.11 Sjómannadagsmessa í Hríseyjarkirkju, sjómaður heiðraður
- 12.00 Ferjumenn grilla pylsur á svæðinu, tæki björgunarsveitar og slökkviliðs til sýnis
- 13.00 Leikir og sprell á svæðinu og við smábátahöfnina
- 14.00 Opnun ljósmyndasýningarinnar Fegurð fjarða á Verbúðinni 66
- 15.00 Kaffisala í Íþróttamiðstöðinni
- 16.00 Sigling fyrir börnin á björgunarbátnum Kidda