Fréttir
Þyrluflugstjóri: Staða öryggismála ömurleg
26.11.2026 kl. 11:30
Mynd: Skapti Hallgrímsson
„Það er erfitt að komast með góðum orðum að því sem að ég var þátttakandi að síðasta kvöld og nóttina sem leið, og hvaða ör það mun skilja eftir í tilfinningum mínum. Mögulega eiga þessi skrif eftir að kosta mig vinnuna eða í það minnsta eina væna áminningu í starfi. Það verður þá að hafa það.“
Þannig hefst pistill Sigurðar Ásgeirssonar, þyrluflugstjóra hjá Landhelgisgæslunni, sem hann birti á Facebook síðu sinni í morgun, í kjölfar hörmulegs slyss þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk úti fyrir Austfjörðum í gær. Eftir að skipverjarnir 17 höfðu verið í sjónum í rúmlega fjórar klukkustundir tókst að hífa alla um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar en í morgun var tilkynnt að þrír þeirra hefðu látist.
„Ömurleg“ staða og „sjálfsmorðsleiðangur“
Sigurður, sem búsettur er í Eyjafirði, segir áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar hafa unnið björgunarþrekvirki sem lengi verði í minnum haft. Leiðangurinn hafi hinsvegar verið langt utan öryggismarka Gæslunnar og hann talar um „sjálfsmorðsleiðangur“ áhafnarinnar.
Árum saman hefur verið rætt um mikilvægi þess að ein þyrla Landhelgisæslunnar yrði staðsett á Akureyri. Bein loftlína þaðan á slysstað var 290 kílómetrar en rúmir 500 km frá Reykjavík. Vegna veðurs varð þyrlan að fljúga með ströndinni í gær og koma við á Hornafirði til að taka eldsneyti.

Sigurður Ásgeirsson þyrluflugstjóri hjá Landhelgisgæslunni snemma árs 2024 þegar þyrlan TF-LÍF var flutt á Flugsafn Íslands á Akureyri þar sem hún verður varðveitt og til sýnis um ókomna tíð. Sigurður átti að baki 3.000 flugtíma á TF - LÍF. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Sigurður segir aðkomu sína að útkallinu í gær ekki með þeim hætti sem hann hefði óskað sér. Í stað þess að mæta á þyrlu hefði hann farið á lögreglubíl á hæsta forgangi frá Akureyri austur í Egilsstaði. „Þrátt fyrir það var ég fyrsti starfsmaður Landhelgisgæslunnar til að „mæta“ á „vet[t]vang“. Þegar þangað var komið var afrek mitt það kvöldið að éta pizzur í flugstöðinni á Egilsstöðum. Vera til staðar ef hin áhöfnin sem verkið vann og flaug frá Reykjavík myndi örmagnast eða taka við ef löng leit tæki við. Að þessu sinni var einungis ein björgunarþyrla tiltæk á Íslandi og hún var líkt og venjulega staðsett í Reykjavík ásamt hinum tveim sem voru bilaðar. Ekki í fyrsta skipti og ekki í hundraðasta skipti. Á þetta hefur verið bent milljón sinnum.“
Sigurður segir stöðu í öryggismálum á Íslandi „ömurlega“ en það virðist hluti af starfslýsingu þeirra sem starfa við öryggismál á Íslandi „að sýna fulla meðvirkni með því getu og áhugaleysi sem þessum málum hefur verið sýnt á síðustu áratugum. Það má ekki upplýsa hversu ömurleg staðan er á þessum málum á Íslandi.“
Pistill Sigurðar er svohljóðandi í heild – akureyri.net feitletrar nokkur atriði:
Það er erfitt að komast með góðum orðum að því sem að ég var þátttakandi að síðasta kvöld og nóttina sem leið, og hvaða ör það mun skilja eftir í tilfinningum mínum. Mögulega eiga þessi skrif eftir að kosta mig vinnuna eða í það minnsta eina væna áminningu í starfi. Það verður þá að hafa það.
Það virðist vera hluti af starfslýsingu þeirra sem starfa við öryggismál á Íslandi hvort sem það er landhelgisgæsla, lögregla, slökkvilið eða aðrir að sýna fulla meðvirkni með því getu og áhugaleysi sem þessum málum hefur verið sýnt á síðustu áratugum. Það má ekki upplýsa hversu ömurleg staðan er á þessum málum á Íslandi.
Mín aðkoma að útkalli næturinnar er ekki með þeim hætti sem ég hefði óskað mér. Í þetta útkall mætti ég ekki á þyrlu heldur á lögreglubíl á hæsta forgangi yfir Möðrudalsöræfi. Þrátt fyrir það var ég fyrsti starfsmaður Landhelgisgæslunnar til að „mæta“ á „vet[t]vang“. Þegar þangað var komið var afrek mitt það kvöldið að éta pizzur í flugstöðinni á Egilsstöðum. Vera til staðar ef hin áhöfnin sem verkið vann og flaug frá Reykjavík myndi örmagnast eða taka við ef löng leit tæki við. Að þessu sinni var einungis ein björgunarþyrla tiltæk á Íslandi og hún var líkt og venjulega staðsett í Reykjavík ásamt hinum tveim sem voru bilaðar. Ekki í fyrsta skipti og ekki í hundraðasta skipti. Á þetta hefur verið bent milljón sinnum.
Á meðan pizzuáti minnar áhafnar stóð vann áhöfnin á starfhæfu þyrlunni björgunarþrekvirki sem lengi verður í minnum haft. Eftir að hafa flogið með suðurströndinni í illviðri með eldsneytistöku á Hornafirði tókst þyrlunni að hífa sautján skipverja um borð eftir fimm klukkustundir - ég endurtek, fimm klukkustundir í sjónum í björgunargöllunum einum saman. Þrír af þessum sautján munu ekki sameinast fjölskyldum sínum aftur. Megi guð blessa þá.
Leiðangurinn sem farinn var er langt utan þeirra öryggismarka sem Landhelgisgæslan hefur. Sjálfsmorðsleiðangur þar sem þyrluáhöfnin, sigmenn sem niður fóru og eftirlifendur sjóslyssins hefðu líklegast týnt lífi ef eitthvað hefði farið úrskeiðis. Líflínan þeirra var biluð þyrla í Reykjavík og þyrluáhöfn að éta pizzur á Egilsstaðaflugvelli.
Gleðin er þó að 14 mönnum var bjargað. Fyrir það ber að þakka.
Ég mun ekki svara eða taka undir þau komment sem hér undir verða væntanlega skrifuð.
Ég hvet alla Íslendinga til að hafa hátt þangað til að þessi mál eru með fullnægjandi hætti og vona að reiðin með stöðu öryggismála á Íslandi og fögru fyrirheitin sem nú verða básunuð lifi fram yfir kaffitíma næstkomandi sunnudags. G[y]rðið ykkur í brók og komið þessu í lag.