Þrjú lið suður, þrír leikir, eitt stig heim
Þrjú knattspyrnulið frá Akureyri héldu suður yfir heiðar í gær til fundar við andstæðinga í Lengjubikar karla og kvenna. Samanlagt komu liðin með eitt stig heim.
Þetta voru fyrstu leikir í Lengjubikarnum þetta árið hjá Þór/KA, sem tapaði fyrir Stjörnunni í miklum markaleik, 5-3, og Þór sem náði að knýja fram 1-1 jafntefli gegn Skagamönnum með marki undir lokin. KA var hins vegar að tapa öðrum leik sínum í riðli 3 þegar liðið beið ósigur á móti ÍR í Egilshöllinni, 3-4.
Jafnt á síðustu stundu á Skaganum
Það voru Þórsarar sem hófu fyrstir leik þegar flautað var til leiks á Skaganum kl. 15 í gær. Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn, en Jón Gísli Eyland Gíslason náði forystunni fyrir Skagamenn með marki á 64. mínútu. Peter Ingi Helgason reddaði stiginu fyrir Þór með jöfnunarmarki á 87. mínútu. Lokatölur 1-1.
Þórsarar leika í riðli 2 í A-deild karla ásamt Aftureldingu, Gróttu, ÍA, Val og Völsungi. Þeir áttu upphaflega að hefja leik gegn Völsungi á Húsavík fyrir viku, en sá leikur verður spilaður á Akureyri miðvikudaginn 18. febrúar. Næsti leikur Þórs er hins vegar heimaleikur gegn Gróttu laugardaginn 14. febrúar.
Markaveisla í Garðabæ
Þór/KA hóf einnig leik Lengjubikarnum í gær, A-deild kvenna, þegar liðið sótti Stjörnuna heim í Garðabæinn. Mörkunum rigndi þó þurrt væri í veðri, samtals átta mörk skoruð þegar upp var staðið, en það voru heimakonur í Garðabænum sem höfðu sigur, 5-3.
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir náði forystunni fyrir Stjörnuna eftir sjö mínútna leik, en María Dögg Jóhannesdóttir, sem kom til félagsins frá Tindastóli og var í gær að spila sinn fyrsta opinbera leik fyrir Þór/KA í KSÍ-móti, jafnaði eftir hornspyrnu sjö mínútum síðar. Eftir rúmlega hálftíma leik varð leikmaður Þórs/KA fyrir því óláni að setja knöttinn í eigið mark og Stjarnan með 2-1 forystu í leikhléinu.
Strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiksins skoraði Snædís María Jörundsdóttir þriðja mark Stjörnunnar og tíu mínútum síðar bætti Birna Jóhannsdóttir við fjórða markinu. Útlitið ekki gott hjá Þór/KA, en Elísa Bríet Björnsdóttir, sem einnig kom til Þórs/KA frá Tindastóli og var að spila sinn fyrsta opinbera leik fyrir félagið, minnkaði muninn með marki á 63. mínútu. Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði þriðja mark Þórs/KA á 85. mínútu og staðan orðin 4-3, en það var Úlfa Dís sem átti síðasta orðið, skoraði sitt annað mark og fimmta mark Stjörnunnar á 88. mínútu.
Þór/KA leikur í riðli með FH, FHL, Grindavík/Njarðvík, Stjörnunni og Þrótti. Þór/KA sækir Þrótt og fyrrum þjálfara sinn, Jóhann Kristin Gunnarsson, heim í næsta leik laugardaginn 14. febrúar.
ÍR með sigurmark á 90. mínútu
Það var einnig boðið upp á markaveislu í Egilshöllinni þegar KA mætti ÍR í riðli 2 í A-deild Lengjubikars karla. Það voru ÍR-ingar sem höfðu betur, 4-3, og kom síðasta markið á 90. mínútu leiksins.
KA komst tvívegis yfir í fyrri hálfleiknum, en lokamínútur hans voru fjörugar. Fyrst skoraði Guðjón Ernir Hrafnkelsson á 41. mínútu, en Emil Nói Sigurbjörnsson jafnaði fyrir ÍR á 44. mínútu. Um mínútu síðar náði Valdimar Logi Sævarsson aftur forystunni fyrir KA, með sínu fyrsta marki í meistaraflokki í KSÍ-mótum, og þeir með 2-1 forystu í leikhléinu.
ÍR náði 3-2 forystu á 58. mínútu þegar leikmaður KA varð fyrir því óláni að skora í eigið mark. Það var síðan í hina áttina á 76. mínútu þegar leikmaður ÍR skoraði í eigið mark og jafnaði leikinn fyrir KA í 3-3. En þar með var ekki öll sagan sögð því Guðjón Máni Magnússon skoraði fjórða mark ÍR og tryggði þeim sigurinn á 90. mínútu, 4-3.
Þetta var annar leikur KA í mótinu, en liðið beið ósigur á móti KR á heimavelli í fyrsta leik. KA leikur í riðli með Grindavík, ÍR, KR, Njarðvík og Íslandsmeisturum Víkings. KA tekur á móti Víkingi í Boganum í næsta leik sínum, sunnudaginn 15. febrúar.