Fara í efni
Fréttir

Þrír útsýnisstaðir á klöppum í Holtahverfi

Pallurinn á Hengingarklöpp. Myndir af vef Akureyrarbæjar

Unnið er að gerð þriggja nýrra útsýnisstaða í Holtahverfi, þar sem smíðaðir eru pallar með bekkjum „þar sem gott er að una og horfa hvort heldur sem er út eða fram fjörðinn eða upp til fjalla,“ eins og það er orðað á vef Akureyrarbæjar, þar sem sagt er frá verkefninu.

Pallarnir verða þar sem heitir Hengingarklöpp, Sjávarklappir og Kríugerðisklöpp. Göngustígar verða í framhaldinu lagðir að þessum litlu unaðsreitum, segir á vef bæjarins.

  • Kríugerðisklöpp og Hengingarklöpp eru báðar í grennd við gamla byggð en Sjávarklappir ekki, en voru nefndar þegar Akureyrarbær auglýsti íbúðarhúsalóðir í Holtahverfi austan Krossanesbrautar haustið 2021.
  • Í auglýsingunni í september 2021 sagði: „Helstu einkenni svæðisins eru miklar sjávarklappir með frábæru útsýni til allra átta. Ekki verður byggt á klöppunum sjálfum heldur á grasflötum í kring. Við mótun skipulags fyrir svæðið hefur meðal annars verið lögð áhersla á sjálfbærni, lýðheilsu og umhverfisvænar samgöngur. Vistgötur verða óvenjumargar og er horft til þess að stuðla að góðu umhverfi fyrir hjólandi og gangandi, til dæmis með því að koma fyrir gróðurbeðum og trjám í götunum.“
  • Klappirnar eru merktar á myndina hér fyrir neðan.

Horft til Súlna af Sjávarklöppum sem eru á 

Horft til norðurs af Sjávarklöppum.