Fara í efni
Íþróttir

Þrír sterkir leikmenn til kvennaliðs SA

Herborg Rut Geirsdóttir, til vinstri, og Saga Margrét Sigurðardóttir á ísnum. Á litlu myndinni er kanadíski markmaðurinn Shawlee Gaudreault. Myndir af vef Skautafélags Akureyrar.

Skautafélag Akureyrar hefur samið við þrjá nýja leikmenn fyrir komandi keppnistímabil í Hertz-deild kvenna. Það eru landsliðskonurnar Saga Margrét Sigurðardóttir og Herborg Rut Geirsdóttir ásamt kanadískum markmanni, Shawlee Gaudreault.

„Sögu Margréti þarf vart að kynna en hún 18 ára varnarmaður og var einn besti leikmaður Hertz-deildarinnra tímabilið 2020-2021 þegar hún spilaði síðast með SA. Saga spilaði stórt hlutverk með sterku liði Södertälje SK í sænsku 1. deildinni á síðasta tímabili en snýr nú aftur í heimaklúbbinn sinn SA,“ segir á vef Skautafélags Akureyrar í dag.

„Herborg Geirsdóttir er 21 árs framherji en hún byrjaði sinn hokkíferil í SA en flutti ung til Noregs með fjölskyldu sinni og spilaði þar lengst af með Sparta Sarpsborg. Herborg fór þaðan til Troja/Ljungby í Svíþjóð þar sem hún spilaði tvö tímabil í sænsku 1. deildinni en á síðasta tímabili kom hún til Íslands og spilaði með Fjölni. Herborg snýr nú aftur til SA eftir langt hlé en það verður virkilega spennandi að sjá þennan mögnuðu stúlku aftur í SA treyjunni. “

Shawlee Gaudreault er 26 ára og spilaði síðast með Ottawa Lady Senators í PWHL deildinni í Kanada „en tók sér hlé frá leiknum en dregur nú fram skautana aftur til þess að taka slaginn með SA. Shawlee er ekki bara frábær markaður heldur líka mjög reyndur þjálfari og mun hún starfa fyrir hokkídeildina við þjálfun yngri flokka og markmanna næsta vetur,“ segir á vef SA.

„Leikmennirnir eru frábær viðbót fyrir okkur og fylla vel í þær leikmannastöður sem fráfarandi leikmenn skilja eftir sig. Það er mikilvægt fyrir liðið að fá inn leikmenn sem hafa svona mikla alþjóðlega reynslu en þær eiga eftir að leiða og setja fordæmi fyrir stóran hóp mjög ungra en efnilegra SA leikmanna sem eru í hraðri framþróun,“ segir aðalþjálfari SA, Finninn Sami Lehtinen.