Fara í efni
Mannlíf

Þríburar saman í fyrsta sinn á Græna hattinum

Þríburar tróðu í fyrsta skipti upp saman á Græna hattinum á dögunum þegar Ágúst Þór Brynjarsson hélt tónleika vegna nýútkominnar plötu sinnar. Plötuna, sem kom út sumardaginn fyrsta, 23. apríl, kallar Ágúst Hjartað á milljón.

Una Torfadóttir samdi og syngur eitt lag með Ágústi á plötunni, lagið Inn í síðustu nóttina, en hún átti ekki heimangengt. „Þegar Una sagði mér að hún kæmist því miður ekki norður á útgáfutónleikana varð ég að redda dúettinum öðruvísi,“ segir Ágúst og þá kviknaði sú skemmtilega hugmynd að þau syngju lagið saman, þríburasystkinin, Ágúst Þór, Rúnar Þór og Særún Anna. „Þau voru svo geggjuð að vilja gera þetta með mér! Þetta er mjög skemmtileg stund,“ segir Ágúst.

https://www.agustmusic.is/

Framundan er svo tónleikaröðin Ágúst á ferðinni, segir tónlistarmaðurinn sem mun fara um landið í sumar og kynna plötuna.

  • Platan Hjartað á milljón er á Spotify sem fyrr segir – Smellið hér eða á myndina til að hlusta.