Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar steinlágu fyrir meisturum Víkings

Valdimar Þór Ingimundarson gerir fyrsta mark leiksins; renndi boltanum í tómt markið af stuttu færi eftir sendingu Óskars Þorgþórssonar af hægri kantinum þegar aðeins 10 mínútur voru liðnar. Mynd: fótbolti.net/Hafliði Breiðfjörð

Þórsarar töpuðu 6:0 fyrir Íslandsmeisturum Víkings í Reykjavík í kvöld í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Eins og tölurnar gefa til kynna höfðu meistararnir mikla yfirburði á heimavelli sínum og sigurinn var vitaskuld afar sanngjarn; Þórsarar áttu nokkra góða sóknarspretti en varnarleikur liðsins í heild var afleitur og Víkingar hefðu getað gert enn fleiri mörk.

Fyrsta markið kom strax á 10. mínútu og eftir tæpan hálftíma var staðan orðin 3:0. Hafi fyrsta markið verið högg var leiknum í raun lokið þegar mörk meistaranna voru orðin þrjú; Víkingsliðið er slík maskína að nánast er ógjörningur er við að eiga eftir að það nær þægilegri forystu.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni