Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar semja – Rafnar kemur frá Völsungi

Allt klárt! Frá vinstri: Þorlákur Árnason, þjálfari meistaraflokks, Viðar Már Hilmarsson, Bjarki Þór Viðarsson, Rafnar Máni Gunnarsson, Aron Birkir Stefánsson og Fannar Daði Malmquist Gíslason. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þrír leikmenn sem farið hafa með lykilhlutverk í knattspyrnuliði Þórs undanfarin ár endurnýjuðu í vikunni samning við félagið. Einn ungur Þórsari gerði á sama tíma fyrsta samninginn og þá gekk Húsvíkingur til liðs við Þór í vikunni. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Þar segir:

  • Markvörðurinn Aron Birkir Stefánsson samdi til hausts 2024. Aron Birkir er 23 ára og á að baki 165 leiki fyrir meistaraflokk Þórs auk þess að hafa leikið fyrir öll yngri landslið Íslands.
  • Varnarmaðurinn Bjarki Þór Viðarsson samdi til hausts 2024. Bjarki Þór, sem er 25 ára, hefur leikið 140 leiki fyrir Þór í deild, bikar og deildarbikar auk þess að hafa leikið fyrir öll yngri landslið Íslands.
  • Framherjinn Fannar Daði Malmquist Gíslason samdi til hausts 2024. Fannar Daði er 26 ára og hefur tekið þátt í 63 leikjum fyrir Þór í deild, bikar og deildarbikar og skorað í þeim 14 mörk. Fannar meiddist illa í fyrsta leik Lengjudeildarinnar en á að verða klár í slaginn næsta sumar. Hann var markahæsti leikmaður liðsins sumarið 2021.
  • Viðar Már Hilmarsson, sem er 19 ára, skrifað undir sinn fyrsta samning við Þór og gildir hann einnig til ársins 2024. Viðar Már gekk upp úr 2.flokki í haust eftir að hafa farið upp í alla yngri flokka félagsins en hann þreytti frumraun sína með meistaraflokki í sumar og kom við sögu í þremur leikjum í Lengjudeildinni.
  • Þá er Húsvíkingurinn Rafnar Máni Gunnarsson er genginn til liðs við Þórs frá uppeldisfélagi sínu, Völsungi. Hann er tvítugur að aldri, fæddur árið 2002, og samdi við Þór til ársins 2025. Hann gerði fjögur mörk í 19 leikjum fyrir Völsung í 2. deild í sumar og á að baki 100 leiki fyrir meistaraflokk Völsungs þrátt fyrir ungan aldur.

Nánar hér á heimasíðu Þórs.