Fara í efni
Íþróttir

Þórólfur yfirþjálfari hjá Tindastóli

Jóhann Sigmarsson, formaður barna- og unglingaráðs Tindastóls, til vinstri, og Þórólfur Sveinsson.

Þórólfur Sveinsson, sem starfað hefur sem knattspyrnuþjálfari hjá Þór liðlega hálfan annan áratug, hefur verið ráðinn yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar Tindastóls á Sauðárkróki.

„Þórólfur eða Tóti eins og hann er kallaður er með UEFA-B þjálfaramenntun og hefur starfað sem þjálfari yngri flokka frá árinu 1998. Hann hefur starfað hjá Leikni í Reykjavík, Fjölni og frá árinu 2004 hjá Þór á Akureyri. Tóti er einnig eigandi og skólastjóri Knattspyrnuakademíu Norðurlands sem hefur verið starfandi frá árinu 2014,“ segir á heimasíðu Tindastóls.

Þar segir Þórólfur: „Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni og mikill heiður að fá að koma í 100% starf að uppbyggingu á yngri flokka starfinu. Það eru spennandi tímar framundan hjá Tindastól og stefnum við á að bæta og gera alla umgjörð knattspyrnunnar í yngri flokkum fyrsta flokks og tengja það saman við meistaraflokka félagsins. Það er bjart yfir Skagafirði.“