Íþróttir
Þór/KA tekur á móti Grindavík/Njarðvík
09.07.2026 kl. 06:00
Atgangur við mark Þórs/KA í síðasta leik liðsins, sigurleiknum gegn Þrótti. Mynd: Ármann Hinrik.
Keppni í Bestu deild kvenna í knattspyrnu fer aftur af stað í kvöld eftir hlé sem var gert vegna þátttöku U19 landsliðsins í lokamóti EM. Nú er hoppað yfir eina umferð og komið að 11. umferð mótsins, en 10. umferðin sem átti að spilast í lok júní var færð aftur fyrir mótið og verður spiluð í byrjun september.
Þór/KA tekur á móti Grindavík/Njarðvík á fimmtudagskvöld. Þór/KA færði sig úr botnsætinu upp í 9. sætið með sigri í síðustu umferð, er nú með sex stig úr niu leikjum. Grindavík/Njarðvík er í 6. sæti deildarinnar með 12. stig.
- Besta deild kvenna, 11. umferð
Þórsvöllur (VÍS völlurinn – gervigras á Ásnum), kl. 19:15
Þór/KA - Grindavík/Njarðvík
Fyrri leik liðanna sem fram fór í Njarðvík í lok apríl lauk með dramatískum hætti, sigurmarki heimaliðsins eftir hornspyrnu á lokamínútu leiksins og niðurstaðan 2-1 Grindavík/Njarðvík í vil.
Leikir 11. umferðarinnar
- Fimmtudagur 9. júlí
Kl. 18
Víkingur - ÍBV
Kl. 19:15
Fram - Breiðablik
Þór/KA - Grindavík/Njarðvík
FH - Þróttur - Föstudagur 10. júlí
Kl. 18
Valur - Stjarnan